..Ólund..

"Lunch / Museum" alveg það sama..!

Já ég fór sem sagt ekki í neinn lunch eins mér hafði verið sagt og er mig farið að gruna ískyggilega að þessi dagskrá sem ég er með í höndunum fyrir næstu daga eigi ekki eftir að standast fyrir fimmaur..

En við fórum í staðinn með borgarstjóranum í heimsókn á mynjasafn hér í Varsjá í morgun. Ég, Americas og stelpurnar frá Afríku. Þetta safn snérist um seinni heimstyrjöldina, helförina og sögu Póllands og fannst mér hún taka virkilega á. Þessar tvær heimsálfur sem fóru með mér voru kannski ekki alveg þær réttu til að fara þarna enda þekktu þær takmarkað sögu Póllands fyrir. Hefði kannski verið meira við hæfi að fara með Suður og Norður Evrópu stelpurnar, en þó ekki, af ýmsum ástæðum..

Ég fékk svo seinnipartinn frían og skellti mér í göngutúr sem var á gráu svæði hjá öryggisvörðunum. Ætluðu ekki alveg að hleypa mér út enn ég var ansi ákveðin og slapp í gegn..  Það er einmitt búin að vera einhverskonar ólund í í mér í dag og ég held að mams viti nákvæmlega hvað ég meina þegar ég nota orðið ólundGlottandi  Gerði meira að segja í því að snúa mér undan blaðaljósmyndurunum á safninu í morgun og þóttist ekki sjá fólkið sem vildi fá eiginhandaráritanir.. Ég veit.. skamm skamm.. Var bara illa upplögð..

Í kvöld fór ég svo sem fulltrú MW á opnunartónleika tónlistarhátíðar sem var að fara í gang hérna í Varsjá.. Hljómaði ekkert alltof illa og fór ég því með opnum huga. En ji minn einn og einasti.. Þetta voru stórtónleikar sinfoníu sem spilaði "modern contemporary" tónlist.. En hún hljómaði nákvæmlega eins og soundtrack úr hryllingsmynd og hvert lag var minnsta lagi 25min. Mjög spes, segi ekki meir.. En eiginlega smá fyndið þannig að þetta var ekki alslæmtBrosandi

Þið megið samt alls ekki miskilja mig, því að ég er þvílíkur aðdáandi klassískrar tónlistar og hef alltaf verið. Þegar ég var 10/11 ára var ég meira að segja áskrifandi og meðlimur í klúbbi þar sem ég fékk sendan heim geisladisk í hverjum mánuði með klassískum verkum eftir þessu helstu tónskáld. Þar mátti m.a finna verk eftir Sebastian Bach, Friedrich Handel, F.J. Haydn, Mozart og Beethoven og þetta hlustaði ég á heima í stofu.. (Í guðanna bænum, afhverju er ég að segja frá þessu.. Skömmustulegur)

Held reyndar að það sem útskýri þetta best sé það að ég var í klassískum ballett og dansaði því við þessa tónlist, plús það að ég spilaði á hljóðfæri og því stutt að sækja þennan klassíska fíling..

En ég er farin að dotta hérna við skjáinn.. Ætla að skríða yfir í rúm enda langur dagur á morgun..

-7 dagar eftir- 

-Uns

 


..Gamla "jákvæða"..

Hehe.. Já, gamla góða "jákvæða" í stuði í gær..Glottandi

En svona er þetta stundum.. Dagurinn í dag byrjaði vel. Fór í morgunmat og fékk að vita mína dagskrá fyrir næstu ÞRJÁ daga, sem er met! Stelpurnar verða á æfingum daginn út og daginn inn og verð ég þar til að aðstoða eftir betu getu. Hins vegar hefur pólsku aðilunum sem vinna með okkur hérna úti og skipuleggja alla viðburðina, verið sagt að ég sé eina manneskjan sem þeir mega draga út af æfingum til að nota í eitthvað annað, því þeir mega alls ekki taka stelpurnar frá danshöfundinum. Þannig að ef ég þekki þá rétt, verð ég vægast sagt busy..

Átti furðulegt kvöld í gær.. Ætlaði eins og áður sagði að fara snemma að sofa en allt kom fyrir ekki og ég var ekki komi í rúmið fyrr en eitt í nótt. Sat aðeins niðrí lobbyi eftir kvöldmat og spjallaði við fólkið en þegar ég kom upp á herbergi datt ég inn á það að fara að skrifa email sem ég er búin að vera á leiðinni að skrifa í marga marga mánuði. Á nokkur svoleiðis email ennþá eftir og stefni á að skrifa þau í dag, enda undarlegur léttir sem kom yfir mann þegar búið var á ýta á "send"..

En ég verð víst að hlaupa, er að fara að hitta borgarstjóra Varsjá í hádegismat..

Meira seinna í dag!Brosandi

 -UB


..Sumu fólki er illt..

Það var N-Írland sem kom, sá og sigraði í hæfileikakeppninni í gærkvöldi. Hún söng fyrir okkur gamalt írskt lag og ég og örugglega helmingur fólksins í salnum var með gæsahúð allan tímann. Hún átti þetta svo sannarlega skilið og skemmtileg tilviljun að N-Írland sé komið í undanúrslit annað árið í röð.

Annars erum við komin til Varsjá og búin að koma okkur fyrir á hótelinu sem við verðum á það sem eftir er mánaðarins. Frekar þægilegt að geta tekið upp úr töskunum í fyrsta skipti og hengt upp fötin sín sem eru búin að vera í krumpustykki í þrjár vikur.

Flugum hingað í morgun, guði sé lof. Hefði ekki höndlað vel enn eina 7 tíma rútuferðina. Er samt búin að vera óendanlega þreytt og dösuð í allan dag. Skil ekki hvað er að mér.. Kannski að maður ætti að fara í rúmið fyrir 10 í kvöld. Dagskráin byrjar alveg 8 í fyrramálið með morgunmat á hótelinu og svo æfingum fyrir final-ið. Donna sem er danshöfundur sýningarinnar er búin að biðja mig um að hjálpa sér að kenna stelpunum rútínuna og halda utan um þetta allt saman og ætti ég að geta það þar sem ég hef nú tekið eitt eða tvö dansspor á ævinni. Er reyndar bara mjög ánægð með að fá að hjálpa til, gott að vera með verkefni í höndunum..

Veit ekki hvort það skín í gegn en ég er dálítið pirruð þessa stundina. Sumt fólk ekki alveg að gera góða hluti hérna og það bitnar á mér.. En ég ætla bara að einbeita mér að mínu, eina í stöðunniBrosandi

Farin að klára að hengja upp föt og koma mér fyrir..

Night night..

-Uns


..To be alone with you..

Ég veit að ég skrifaði ekki í gær.. Og ég hef enga afsökun..!

Var að læra í allan gærdag og netkortið sem ég keypti hérna dýrum dómum virkaði ekki fyrr en seint í gærkvöldi og þá bara nennti ég ekki að fara að babla hérna..

En hvað um það, áfram með smjörið..

Gleymdi alveg að segja ykkur frá einu, en þetta kvöld í Saltnámunni þegar flottasti kjólinn var valinn, klæddist ég sjálf æðislegum kjól sem ég fékk lánaðan hjá henni Petrúnellu sem var með mér í Ungfrú Ísland um árið. Hann sló alveg í gegn og fékk ég meira að segja að heyra það frá hinum dómurunum að hann hefði pottþétt verið í topp 5 ef hann hefði verið að keppa þetta kvöld!

Þannig að takk fyrir mig Petrún, "you made my day"! ;)

Á því miður ekki til betri mynd, ljósmyndarinn aðeins skjálfhentur, en hérna kemur hún..

Næstu tveir dagar fóru í hina ýmsu viðburði og uppákomur, misáhugaverðar þó en ég var einnig í upptökum fyrir einn af aukaþáttum MW, Beach Beauty þáttinn. Tókum upp alla "linkana" í skröltandi hestvagni í Kraká en því miður komumst við að því nokkrum dögum síðar að þeir væru ónothæfir þar sem myndavélin var á stöðugri hreyfingu og það heyrðist alltof mikið í hófataki hestanna. Sem sagt smá tímaeyðsla þar, en svoleiðis er það víst bara stundum..

Laugardagskvöldið var svo eitt það skemmtilegasta sem við höfum átt hérna. Fórum í dinner í boði Kraká borgar, þar sem boðið var upp á góðan mat og frábær skemmtiatriði. Eftir það var keyrt með okkur allar sem eina, í opnum bílum niður að ánni þar sem fram fór stórkostleg flugeldasýning með ljósasýningu og tónlist undir og yfir ánni svifu uppblásinir drekar. Snilldar endir á góðu kvöldi.. Morguninn eftir tók svo við næsta rútuferðalag en áfangastaðurinn var borgin Wroclaw þar sem ég er stödd núna. Hérna hef ég lítið verið að hafa mig frammi, fékk í rauninni bara nokkra daga pásu frá öllu amstrinu til að sinna náminu en ég þurfti bæði að skila verkefni yfir netið sem og vinna upp lesefni síðustu vikna.

Í kvöld fer hér fram hæfileikakeppnin sem er "fast track" keppni en stelpurnar eru búnar að vera á þrotlausum æfingum fyrir hana. Ætla nú að kíkja á þær sýna listir sínar en mig grunar einnig að ég verði plötuð til að sitja í dómnefnd. Á morgun fljúgum við svo til Varsjá þar sem við verðum út mánuðinn og þá getur maður loksins tekið upp úr töskunum og komið sér almennilega fyrir, sem verður sko munur! Brosandi

Annars er ég bara nokkuð góð þessa dagana, sem er skref í rétta átt því mér leið alls ekkert vel þegar ég kom hingað út í byrjun mánaðarins. Eins mikil klysja og þetta orð er þá er mikið 'soulsearching' búið að fara fram og ég hef það á tilfinningunni að ég komi ný og betri manneskja heim.. Fyrst var ég ekki viss um að svona mikil einvera eins og ég er búin að vera að upplifa hér væri neinum holl, en nú er ég alveg á því að hún hafi gert mér gott þrátt fyrir að vera erfið á köflum. Búin að vera að taka mig í gegn andlega og líkamlega, skref frá skrefi: Nú liggur leiðin bara upp á við og vinnan mun halda áfram um ókomna tíð. Held að það sé öllum holt að taka sig svona í gegn..Sumir þurfa meira á því að halda en aðrir en mín leið er að gera þetta frá grunni og gera þetta almennilega í eitt skipti fyrir öll.

Það sem er búið að hjálpa mér mest er hugleiðslan. Fer ég varla almennilega í gegnum daginn núna án þess að fá þennan hálftíma útaf fyrir mig. Kveikja á kerti og anda.. Eftir að hafa hreinsað hugann er gott að setjast niður og skrifa í bókina góðu, allt sem kemur upp í hugann og reyna að koma því frá sér. Því stundum hugsar maður of mikið og kemst því aldrei að niðurstöðu um hvað maður vill og hvað ekki.. Og þetta hjálpar mikið..

Enn.. Nóg komið af djúpspeki.. Glottandi

20 dagar liðnir og 10 eftir.. Hlakka svo til að koma heim og hitta fjölskylduna og dýrin mín. Og tala nú ekki um vinkonurnar og vinina. Því það er allavega eitt sem mér hefur tekist vel í lífinu, að velja mér vini. Traustari og yndislegri vinahóp get ég ekki ímyndað mér..Brosandi

Farin í lunch, með Sufjan Stevens í eyrunum..

 

..I'll swim across lake Michigan, I'd sell my shoes.

 I'll give my body to be back again, in the rest of the room..

 -To be alone with you-

 -Uns


..Til hamingju með daginn..

Í dag (18.sept) hefði Amma Gull orðið 77 ára gömul. En eins og margir vita er hún ástæðan fyrir því hvar ég er í dag.. Hennar uppáhalds, uppáhaldslitur var alla tíð bleikur og er því svoldið fyndið að segja frá því að þegar ég vaknaði í morgun fór ég í bleika peysu og setti á mig bleikt hárband (?) án þess að gera mér nokkra grein fyrir dagsetningunni.. Tilviljun eða hvað..! Það er naumast að gamla er með puttana í ferðatöskunni minniGlottandi

Er að mana mig í að halda áfram með ferðasöguna, en það er bara alls ekki eins gaman að skrifa svona langt aftur í tíman. Best að ljúka því af samt..

Frá Gizycko til Kraká tókum við lest.. Sú lestarferð var hvorki meira né minna en 9 klukkutímar og hélt ég að hún yrði algjör dauði. Svo var reyndar ekki en ég gat nánast búið til rúm úr stólnum mínum og svaf því alveg helminginn af tímanum. Restinni eyddi ég svo í lærdóm þangað til tölvan varð batteríslaus, hlustaði á Ipodinn og spjallaði við fólkið.  Alls ekki svo slæmt!

Hótelið sem við gistum á fyrstu næturnar var ekki í Kraká sjálfri heldur borginni Katowice klukkutíma frá Kraká. Eða öllu heldur tveimur tímum frá Kraká. Það er nefnilega þannig með pólverjana að þegar þeir gefa upp tíma sem það tekur að komast frá einum stað til annars þá er öruggast að tvöfalda hann og er láta það svo koma sér á óvart ef það tekur styttri tíma en það. Alveg magnað..

Hótelið sjálft var ofsalega fínt og naut ég þess lúmskt að vera komin í lúxusinn aftur. Annars er ég búin að taka "note to self" eftir öll þessi ferðalög og ný og ný hótel, að framvegis ferðast ég með mins eigins kodda. Sumir koddar sem ég hef lent í eyðileggja fyrir manni heilu næturnar þeir eru svo erfiðir, svo margir alltof mjúkir og alltof stórir fyrir minn smekk.

Enn áfram nú..! Fyrsta daginn keyrðum við til Kraká og gengum um á markaðstorginu í skrúðgöngu fyrir heimafólk og túrista. Þaðan fórum við inn í frægustu kirkju borgarinnar og mjög sérstakt, mörg hundruð ára gamalt altar var opnað fyrir okkur. Frekar flott mundi ég segja og gaman að sjá Brosandi

Eftir lunch fórum við svo aftur upp í rúturnar góðu og lögðum af stað með yfirdrifnu lögreglufylgdinni okkar en reglan er sú að ég verð alltaf að ferðast fremst í fyrstu rútunni og sé því öll ósköpin Glottandi

Allt að gerast!!

 Leiðin lá á óvenjulegan stað, en við vorum að fara að eyða restinni af deginum í 135 metra dýpi niðrí jörðinni í saltnámu sem er rétt fyrir utan Kraká. Stórkostlegt fyrirbæri!

Fórum þarna niður í endalaust hraðskreiðri lyftu sem var nánast í frjálsu falli og frekar creepy.. Ríghélt í einn af PR strákunum því þetta var eins og að vera í tívolí tæki nema þarna vorum við fjögur eða fimm í litlu búri og urðum að halda okkur í rimlana. Þegar niður kom tók við hvert undrið á fætur öðru. Þvílíkir salir og kapellur og ég veit ekki hvað og hvað og allt grafið inn í saltsteininn.

Þarna eyddum við svo deginum og kvöldinu en keppnin um flottasta kjólinn fór fram á sviði þarna niðri seinna um kvöldið.  Ég var einn af dómurunum sem var mjög gaman en það var Króatía sem bar sigur úr bítum í geðveikum kjól sem ég setti strax í fyrsta sætið.. Holland var í öðru og Indland í því þriðja en hún er algjört yndi sú stelpa og á líka flottustu föt sem ég hef á ævi minni séð enda dýrka ég indversk fötGlottandi

Ekki meira í bili, kominn háttatími á mig..

-Uns


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband