Færsluflokkur: Kína

..Þá skiljast leiðir..

Það er komið að leiðarlokum.. Stóra kvöldið í kvöld og mjög sérstakt tímabil í lífi mínu á enda..

Árið mitt búið að vera ógleymanlegt í alla staði, gengið í gegnum djúpa dali og yfir hæstu fjöll, líkt og gengur og gerist, en fyrir vikið stend ég uppi í dag mun sterkari og heilsteyptari einstaklingur en nokkru sinni fyrr. Síðastliðinn mánuður spilaði stóra rullu í því ferli og var lokahnykkurinn sem ég þurfti..

Vinkonur mínar missa það, ef ég set þetta hérna inn, en ég get ekki annað þar sem ég tók þetta svo til mín.. Sorry stelpur..Brosandi Rak augun í stjörnuspá í lok ágústmánaðar, ætlaða tvíburanum sem ég tilheyri. Þar stóð eitthvað á þá leið..

"Þú velur þér samferðafólk þitt í lífinu en situr uppi með sjálfa þig. Ekki bíða lengur með sætta þig við hlutina, lærðu að lifa með fortíðinni og hættu í sífellu leita að hinu rétta. Vertu hin eina rétta"

Vel mælt og eitthvað sem ég ætla að tileinka mér..

Vil nota tækifærið og þakka ykkur fyrir samfylgdina.. Ykkur sem hafið fylgst með mér, glaðst með mér frá upphafi og veitt mér ómetanlega hlýju og stuðning.. Og einnig ykkur, sem komið hérna gagngert til að gagnrýna.. Þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur, er minn harðasti gagnrýnandi sjálf og þar verður engin breyting á..

Ætla hér með að kveðja ykkur, um leið og ég horfi til baka yfir árið og hugsa til manneskju sem fylgdi mér hvert fótmál og á svo stóran hluta af hjarta mínu..

 

..My Way...

..I've loved, I've laughed and cried.
I´ve had my fill.. My share of losing.
And now, as tears subside,
I find it all so amusing..


..For what is a man, what has he got?
If not himself, then he has naught.
To say the things he truly feels,

And not the words of one who kneels.
The record shows I took the blows.
And did it ..my way..

                                                                                                           -Frank Sinatra-

 

..Köttur út í mýri, setti upp á sig stýri.. Úti, er ævintýri..

Eða.. Rétt að byrja..?

-Uns


..Tikk Takk..

Aðeins of þreytt fyrir lífið ákkúrat núna..

Æfingar í allan dag, generalprufa í allt kvöld og gekk sæmilega eins og vera bar. Komst reyndar að því að ég þarf að tala á sviðinu annað kvöld, sem ég hafði ekki hugmynd um, en það reddast..

Bara pant ekki hugsa um þessar 2 milljarða sem kjósa að vera að fylgjast með..

Ég held ég viti hver vinnur.. Enginn sagt orð við mig, bara tilfinning sem ég hef. Mun koma á óvart, það er nokkuð ljóstBrosandi

Er byrjuð að tikka inn í síðasta sólarhringinn minn sem Miss World. Á þessum tíma á morgun get ég strokið um frjálst höfuð í fyrsta skipti síðan 10. des á síðasta ári. Líður skringilega.. Enn vel..

Breakfast TV í fyrramálið, alltof snemma. Rise kl. 7.15.. En það síðasta sem ég þarf að gera og geri ég það með bros á vör.. Reyni svo að leggja mig þegar ég kem til baka..Glottandi

Hugsa heim..

Ykkar,

Uns.


..Sjáið hvað ég fann..

..Síðan í kínverska sendiráðinu..

 

Það nýjasta í fréttum er að strákarnir í Westlife verða aðalskemmtiatriðið í showinu annað kvöld. Það lítur því út fyrir það að við Emý vinkona munum eiga það sameiginlegt að hafa verið á sviði með þeim félögumGlottandi

Er á leiðinni í lunch og svo beint í rennsli út í leikhúsi.. Hlakka til að sjá skvísurnar á sviðinu!

Meira í kvöld..

 -Uns


..Rauður ópal..

Umm.. Fékk sendingu frá Íslandi í kvöld.. Elín Gests. og Berglind mættar á svæðið og voru þær með pakka frá Mams í farteskinu. Rauður ópal og þristar..! Íslenskt nammi, gerist ekki betraGlottandi Reyndar búin að lofa ansi mörgum að þeir mundu fá að smakka, svo minna verður eftir handa mér, sem er þó kannski bara ágætt..

Enn það var sko gott að hitta þær.. Fá smá knús og setjast niður og spjalla í rólegheitunum. Fengum reyndar lítinn frið fyrir ljósmyndurum og þá sérstaklega þegar Ásdís settist hjá okkur, klædd í sitt fínasta, með Iceland borðann um hálsinn, nýkomin úr dómaraviðtalinu. Held að henni hafi bara gengið vel, enda búin að gera allt óaðfinnanlega hingað til. Algjör pró!Brosandi

Mamma hennar og pabbi komu svo stuttu seinna og sást langar leiðir hvað hún var ánægð að sjá þau. Dáðist reyndar að henni hvað hún var sterk, því þegar ég hitti mömmu í Kína eftir mánaðardvöl gat ég ekki annað en tárast enda asni "intense" tími sem maður gekk í gegnum þar. Fannst ég reyndar vera svo miklu miklu lengra í burtu þar en nokkur tímann hér (sem er að sjálfsögðu raunin landafræðilega séð) en fann meira fyrir einhverskonar varnarleysi..

Annars flýgur tíminn þessa dagana.. Eyddi nokkrum klukkutímum í viðtöl í dag, reyndi að klára eins mikið og ég gat í einu svo ég þyrfti ekki að vera að þessu á morgun líka. Rennsli á showinu seinnipartinn á morgun og svo generalprufa annað kvöld, fyrir fullum sal að mér skilst. Svo rennur laugardagurinn upp með öllu sínu.. Magnað..

Er svo bókuð í flug heim á sunnudagskvöld samferða Ásdísi. Getur reyndar að það breytist og við fáum að fljóta með í beinu flugi héðan, til Íslands sem fer fyrr á sunnudeginum og vona ég það svo innilega. Vantar mest að komast heim að læra.. Meira að segja búin að pakka helmingnum af dótinu mínu og í raun tilbúin að kveðja með bros á vörBrosandi

Hlakka reyndar til ballsins sem verður eftir finalið á laugardagskvöld. Þá er ég endanlega laus við það að vera með kórónu á höfðinu og borða um hálsinn get andað rólega í góðra vina hópi. Hins vegar hefur líf annarar stúlku tekið óvænta stefnu..

Þykir leitt eiga engar myndir handa ykkur elzkurnar..

Þær verða þó pottþétt hér á morgun..

Hljómsveit dagsins: The Verve..

..I know I´ll see your face again..

-Uns


..Back to China..

Í gærkvöldi fór fram síðasti viðburður sem ég er viðstödd sem Miss World.. Og hvar annars staðar hefði verið betur við hæfi að hann færi fram... En í kínverska sendiráðinu hér í Póllandi..!! GlottandiÞetta var stór og flottur viðburður, um 500 gestir viðstaddir (meirihlutinn kínverjar) auk allra keppandanna. Sérstakir heiðursgestir voru æðstu menn úr ríkisstjórn Sanya, sem er borgin sem ég var krýnd í, í Kína í fyrraBrosandi

Heill her ljósmyndara og blaðamanna var mættur á staðinn og stóð ég í ár og aldir upp á sviði í fullum skrúða með bæjarstjóra Sanya og Varsjá sitt hvorum megin við mig. Eftir mjög grand móttökur var það svo kvöldverður, en hann var að sjálfsögðu kínverskur matur sem minnti mig ítarlega á dvöl mína í Kína og því borðaði ég lítið. Sem betur fer, segi ég í dag, því 22 keppendur vöknuðu upp með magakveisu í morgun vegna matarins..

Þetta var samt sem áður ofsalega gott kvöld og ég naut þess virkilega vel. Fann mér gott horn útaf fyrir mig þar sem ég spjallaði og gantaðist með samstarfsfólki mínu hérna hjá MW, sem ég á án efa eftir að sakna gríðarlega.. Mikill vinskapur myndast eftir náið samstarf og sameiginlega mjög einstaka lífsreynslu..

Ég var í gamla góða Ungfrú Reykjavík kjólnum mínum, sem vekur alltaf lukku og mér líður alltaf vel í.. Fannst við hæfi að klæðast honum þar sem þetta byrjaði allt saman með þessum blessaða kjól og gat því endað að vissu leyti með hann "inn í myndinni".. Framundan eru æfingar og dómaraviðtöl hjá stelpunum en ég mun á einhverjum tímapunkti vera kölluð út, til að kynnast mínu hlutverki á sviðinu þetta lokakvöld. Númer eitt, tvö og þrjú hjá mér, er þó að "standa í lappirnar" á sviðinu..!Glottandi

..Ég og góðvinkona mín, Ungfrú Holland..

Þangað til á morgun..

..Góða nótt..

-Uns


..Íslendingar á förnum vegi..

Síðast þegar þið heyrðuð frá mér, hrjáði mig svokallað Cabin Fever sem ég náði að lækna með ágætis hætti. Tölti einfaldlega niður stigana á hótelinu í stað þess að nota lyfturnar, þóttist svo vera að tala í símann, setti hárið ofan í augu og tók strunsið út í gegnum lobbyið Glottandi Vissi reyndar ekkert hvert ég átti að fara og rölti því um stefnulaus, dró djúpt andann og naut ferska loftsins.  Vildi samt ekki tilla mér neinsstaðar, því þrátt fyrir að það væru fáir á ferli voru nokkrir skuggalegir..

Hérna í Póllandi er alveg harðbannað að hlaupa yfir stórar umferðargötur ofanjarðar. Hér eru heilu samfélögin neðanjarðar í allskonar göngum sem hjálpa fólki að komast "yfir" götur. Þarna niðri finnurðu svo allt mögulegt og ómögulegt, skyndibitastaði, verslanir, hárgreiðslustofur og ég veit ekki hvað og hvað.. En ástæðan fyrir því að ég er að segja ykkur þetta er sú að þetta kvöld er ég var á leiðinni heim úr þessum litla göngutúr mínum, þurfti ég að nota ein svona göng.. 

Í miðjum göngunum er kallað á eftir mér mjög skýrt og greinlega, "Unnur" !?! Mér snarbregður og fyrsta hugsunin er, "vá hvað ég er búin að koma mér í mikil vandræði núna". En svo áttaði ég mig á því að enginn hér kallar mig Unni og þegar ég snéri mér við stóðu þar tveir blásaklausir íslenskir ungir menn sem sáu mig á strunsinu og ákváðu að "heilsa upp á mig". Mjög nettir báðir tveir og ég sé eiginlega eftir því að hafa ekki sest niður með þeim einhverstaðar og spjallað betur við þá. Alltaf gaman að hitta íslendinga á förnum vegiBrosandi

Morguninn eftir svaf ég út en reyndi svo að ná hausnum á mér niðrí bækur það sem eftir lifði dags.. Framundan var síðasti opinberi viðburður minn sem Miss World, fyrir utan lokakvöldið, og var það skrýtin tilfinning, en á góðan hátt..

-Uns


..Flashback..

Vá hvað ég fékk mikið flashback á æfingunni í gær. Tónlistin, rútínan, tilfinningin á sviðinu.  Æðislegt..!Brosandi 

Gat reyndar ekki hjálpað Donnu mikið því tíminn var naumur og hún vildi bara renna öllum einu sinni í gegn. Þetta var fyrsta æfingin á sviðinu sjálfu en það er loksins tilbúið og munu næstu dagar fara alfarið í æfingar og ég verð henni innan handar svo lengi sem ég verð ekki bókuð einhverstaðar annars staðar.

Enn það fer að styttast í þetta.. Lokakvöldið á laugardag og þá er svo sannarlega komið að kaflaskiptum hjá mér.. Get ekki sagt annað en að ég sé orðin spennt að sjá hver það verður sem tekur við og mun ég án efa gefa henni nokkur góð ráð áður en hún leggur út í þetta ár sitt..Brosandi

Lærdómur og aftur lærdómur í dag.. Er að reyna að einbeita mér að lestrinum þar sem þetta próf í næstu viku hangir yfir mér. Verður ágætis "reality check" að koma beint heim í erfitt próf, því að þessi veröld sem við erum að upplifa hérna úti er ekki beint eins og hún gerist eðlilegust. Síðkjólar við morgunverðarborðið og kóróna á kvöldinGlottandi

Er reyndar með smá cabin fever þessa stundina, einbeitingin út og suður og mig sárlega vantar súrefni, annars sofna ég aldrei! Ætla að fara að finna eitthvað út úr þessu..

Meira á morgun..

-Uns


..Stress..

Jæja.. Skilst að fyrsti þáttur "Vote for me" verði sýndur heima í kvöld.. Get ekki neitað því að ég er með smá stresshnút í maganum, jafnvel þó að búið sé að frumsýna þetta um alla Asíu, Ameríku, UK og í einhverjum evrópulöndum..

Það versta er samt, að ég er ekki búin að sjá þetta..! Og veit því ekki hvort ég er ánægð með þetta eða ekki.. Var allt gert í miklum flýti og bara ein, tvær tökur á hvern "link".. Það eina sem ég get samt gert núna er bara að vona, og krossa fingur um að ég líti ekki út eins og einhver algjör viðvaningurGlottandi

Gærdagurinn var ágætur. Var viðstödd útihátíð niðrí miðbæ Varsjá seinnipartinn. Fór á svið og hélt stutta ræðu en var svo alveg óvænt beðin um syngja lag með söngvara á sviðinu..! Og þá voru góð ráð dýr skal ég segja ykkur.. Ég og söngur eigum ekki beint samleið, plús það hafði ég aldrei heyrt þetta lag áður. Einhvern veginn komust við þó í gegnum þetta með mig hálfhlægjandi allan tímann.  Alveg furðuleg uppákoma..!Brosandi

Charity dinnerinn heppnaðist svo vel í gærkvöldi. Þar fór fram uppboð þar sem keppendurnir buðu upp gjafir sem þær komu með frá heimalöndum sínum, svipað og við gerðum í fyrra. Það söfnuðust strax eftir aðeins 20 uppboð, hátt í 100.000 zlotys sem er nokkuð gott. Restin af gjöfunum fer svo á Internet uppboð en allur ágóði rennur óskiptur til elsta barnaspítala í Varsjá, sem ég heimsótti einmitt í fyrstu ferðinni minni hingað til Póllands. Það er gott að vita því hann þarf virkilega á þessum aurum að halda.

Dagurinn í dag verður rólegur.. Er bókuð á einhvern einn viðburð núna seinnipartinn en á eftir að fara upp á skrifstofu og fá nánari upplýsingar um hvers eðlis hann er. Svo er það  bara danskennsla með Donnu í kvöld, sem er hreinasta skemmtun fyrir mér!Glottandi

Að lokum.. Vil ég hvetja alla til að kjósa hana Ásdísi Svövu okkar inn í undanúrslit Miss World 2006. Kosningin er nú þegar hafin og íslendingar búnir að sýna það og sanna hvers þeir eru megnugir í svona kosningum!

Hnupplaði þessari mynd einmitt af blogginu hennar. Hún er síðan í gærkvöldi en ég var sjálf myndavélalaus. Veit ég verð að fara að gera eitthvað í þessu myndahallæri á síðunni minni.. Leggst í myndatökur í vikunni, lofa þvíBrosandi 

-Uns


..Hehe..

Nú verð ég að hlæja..!Glottandi

Missti náttla af morgunmat í morgun og ákvað því að reyna að komast út óséð og kaupa mér Subway eða eitthvað gott að borða. Enn nei.. Var ekki stoppuð á leiðinni út, heldur elti pólski öryggisvörðurinn mig allan tíman, stóð fyrir utan Subway á meðan ég keypti mér samloku og elti mig svo tilbaka! Hversu fyndið er þetta..! Brosandi Og ég mátti alls ekki ganga við hliðiná honum, hann varð að vera svona 3 metrum á eftir mér svo hann væri með yfirsýn yfir tilvonandi "árásarmenn"Glottandi

En vá hvað það var gott að fá góða samloku. Kalkúnn, kál og tómatar, gerist ekki betra.. Á eftir að ganga fyrir þessari máltíð í allan dag, enda orðin ansi þreytt á pinnamatnum. Dreymir um gúllasið hennar mömmu, hakk og spagettí, kjötsúpu og eitthvað eðlilegt..

Verð að drífa mig niður, erum að fara af stað í eitthvað mission..

-UB


Að sofa út..

..er best í heimi, sérstaklega þegar maður veit ekki sú verði rauninni þegar vekjaraklukkan fer af stað kl. 8. Þá beið mín sms í símanum.. "You´re not needed until after lunch"..  Gleyma, að ég ætli þá að fara að klæða mig upp og mæta í morgunmat hálf 9Glottandi

Ég fór nú meira að segja að sofa á góðum tíma í gær þannig að ef þið heyrið mig kvarta undan þreytu í dag, ekki vorkenna mér..!

Er samt að hugsa um að nota tímann vel og læra til hádegis.. Ekki veitir af, hoppa beint út í djúpu laugina þegar ég kem heim en ég verð í miðannarprófum frá 3. til 18/19.okt. Grunar að ég verði að búa niðrí skóla eða gamla mbl húsi þessa daga og læra út í eitt..

En eftir að þessum prófum lýkur hefur mér svo tekist að bóka mig hingað að þangað. Í byrjun nóv. er það t.d Indland í viku og London í 3 daga. Og í lok nóv. fer ég til Írlands í tvo daga í eitt stutt verkefni. Tvö eða þrjú verkefni er ég ekki búin að fá dagsetningar á, en þau munu að öllum líkindum eiga sér stað núna fyrir jól. Sem sagt meiri vinna og  enn meiri ferðalög framundan..  

En svo er líka draumurinn að verðlauna aðeins sjálfan sig fyrir vinnuna og kíkja aftur til New York rétt fyrir jólin. Upplifa þessa margrómuðu jólastemmningu sem þar svífur yfir vötnum á þessum tíma árs. Spurning hvern maður á að að draga með sér, en ég er nú með eina manneskju í huga..Glottandi

Best að fara að gera eitthvað.. Tíminn flýgur..!

Kíki á ykkur aftur í kvöld þegar ég kem heim úr "The Miss World Charity dinner" sem er árlegur viðburður keppninnar..

-Uns

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband