..Á leið í ferðalag..

Sit hérna út á svölum á herberginu mínu að hlusta á U2. Klukkan er 6 að morgni og ég er að bíða eftir morgunmat sem byrjar 7. Vorum vaktar klukkan 6 því við erum að fara út á flugvöll innan skamms á smá ferðalag hérna innanlands í Kína.
Síðustu dagar eru búinir að vera erfiðir. Það er verið að reyna á þolinmæðina í okkur alveg til hins ýtrasta með að því virðist skipulagsleysi og tímaskorti. En ég held að það sé bara verið að prófa okkur. Hvernig við bregðumst við undir pressu og það eru ansi margar sem hafa brotnað saman og meðal annars er ungfrú Finnland farin heim, litla greyið :/
En ég held að ég hafi alveg náð að standast prófið hingað til. Viðurkenni samt fúslega að ég var alveg búin á því í fyrrinótt þegar við fengum 3 tima svefn vitandi það að við yrðum í myndatökum ALLAN daginn eftir. En svona er þetta bara..!

Ástæðan fyrir því að ég sit hérna út á svölum er sú að mér datt í hug að reyna að sjá sólarupprásina svona einu sinni í rólegheitum. Sé glitta í hana við sjóndeildarhringinn og efast ekki um að sólarupprás í svona paradís sé heldur betur tilkomu mikil :)

En eins og áður sagði vorum við í myndatökum í allan gærdag bæði video upptökum og venjulegum myndatökum. Allar myndatökurnar fara fram á bikíní og eru flestar fyrir kynningarþætti hverrar heimsálfu verða seldir til sjónvarpstöðvanna með keppninni sjálfri. Þeir heita "Vote for me Miss Northern Europe"/ Miss Southern Europe o.s.frv.
Mjög skemmtileg útfærsla á þessu öllu saman og ég hvet ykkur til að þrýsta á Skjá Einn að sýna keppnina og allavega einn kynningarþátt heima á fróni. Keppnin sjálf er í hádeginu laugardaginn 10.des. Hvað er betra en að sofa út á laugardagsmorgni og leggjast upp í sófa og horfa á Ungfrú Heim..! :)

En ég ætla að fara að hafa mig til.. Er bara í hótelsloppnum og hótelinniskónnum hérna, nývöknuð. Ekkert rosalega smart! ;)

Veit ekki hvernig verður með netsamband á þessu litla ferðalagi okkar, en ég skrifa að sjálfsögðu ef ég get. Annars bara góða helgi, farið vel með ykkur og ég bið að heilsa heim til gamla góða Íslands! :)

Minni á Kosningu á:

Ungfrú Heimur

Farið inn í "Finals" og svo kostar bara einn dal að kjósa stelpuna ykkar ;)

Bestu kveðjur,
Unnur Birna.

..Ja hérna hér..

Það er aldeilis :) Ég fékk furðulega upphringingu frá "lífverðinum" mínum í gærkvöldi þar sem hún sagði mér að það biði mín gestur í lobbyinu.. Mér fannst þetta mjög undarlegt þar sem ég þekki skiljanlega engann hérna í Kína og svo er það ekki venjan að við fáum að fara út af herbergjunum okkar af persónulegum ástæðum nema það útaf einhverju nauðsynlegu. Til dæmis tók það mig þrjá daga að fá það í gegn að fara niður í lobby einmitt að kaupa batterí. Það var alveg STÓRmál ;)
En aftur að sögunni minni ;) Ég sem sagt tók mig til og fór niður með lífverðinum og hver haldiði að hafa beðið mín þar!! Enginn annar en íslenski sendiherrann hérna í Kína, Eiður Guðnason ásamt fríðu föruneyti bæði íslendingum og kínverjum.. Ég átti ekki til orð! Þvílíkur heiður og virkilega gaman að þeir skildu hafa gert sér ferð hérna niðreftir til að hitta mig :) Þeir voru reyndar í viðskiptaferð hérna á eyjunni en þegar þeir fréttu af mér ákváðu þeir að gera krók á leið sína og heilsa upp á mig. Þeir sögðu mér reyndar að það hefði tekið nokkur símtöl við Miss World keppnina að fá leyfi til þessa að hitta mig, en þeir fengu það loksins í gegn, sem betur fer því ég fékk að sitja með þeim á kaffihúsi hótelsins í heilan hálftíma, en ég hafði aldrei komið þangað áður né fengið að njóta útsýnisins sem er þaðan út á sjó. Ég er því eins og þið heyrið alveg í skýjunum með þessa stuttu en skemmtilegu heimsókn þar sem ég fékk að tala íslensku við áhugaverða og hressa menn.
Þeir voru aðallega í viðskiptaferð hérna í tengslum við sölu og kaup á fiski og fiskafurðum ef ég skildi þá rétt og í hópnum voru meðal annars þeir Eyþór Ólafsson og Vilhjálmur Guðmundsson (trade council of Iceland) ásamt fleirum.

Annars er ekki mikið meira að frétta héðan. Myndatökur og aftur myndatökur það eina sem við gerum og erum í rauninni alltaf í viðbragðsstöðu uppstrílaðar inn á herbergi ef það skildi vera kallað í okkur.
Svo er á leiðinni stormur hingað til Hainan, eða einhver smá fellibylur þannig að veðrið var gjörbreytt þegar við vöknuð í morgun. Drungalegur himinn og sviptivindar í trjánum. Svoldið ógnvekjandi en samt einhvernegin spennandi og maður finnur svo sannarlega að það liggur eitthvað í loftinu.

Aftur að keppninni.. ;)
Keppnin í ár fer öðruvísi fram en síðastliðin ár, en nú er það netkosning og símakosning sem ræður úrslitum og tekið er mið af fólksfjölda hvers lands fyrir sig. Þannig að nú er um að gera að sýna stuðning í verki og koma ÍSLANDI aftur á kortið aftur í þessari keppni.

Þannig að "koma svo, allir saman nú" ;)
Kjósið Unnsuna ykkar inn á:

Heimasíða Miss World

Kosninganúmerið mitt/MISS ICELAND er: 208

Takk innilega fyrir mig,
Bestu kveðjur heim til Íslands!

Ykkar,
Unnur birna.


Fleiri fréttir frá Kína...!

Það er alveg ótrulega mikið búið að gerast þessa 6 daga sem ég hef dvalið í Kínalandinu. Finnst eins og ég sé búin að vera hérna í heilan mánuð..!
En við erum m.a búnar að fara í þó nokkra gala kvöldverði með hinum og þessum þjóðþekktum einstaklingum hérna í Kína. Fórum í skrúðgöngu um helgina þar sem við vorum skrúðgangan! Stóðum á flottum skreyttum pallbílum sem voru keyrðir um miðborg Sanya og hálf milljón manna kom að fylgjast með, öskrandi og veifandi eins og við værum hollywood stjörnur! ;) Held að ég hafi veifað fyrir lífstíð enda með svaka harðsperrur í hægri hendinni daginn eftir. Svo fórum við líka sem heiðursgestir á "kínverska óskarinn" og gengum rauða dregilinn en það og skrúgangan voru ábyggilega þær súrrealískustu upplifanir sem ég hef átt.

Kínverjarnir eru gjörsamlega að tapa sér yfir þessu Miss World dæmi og hvar sem við komum eru þeir að taka myndir, reyna að snerta okkur og eiginlega bara að fara yfir um á æsingi yfir þessu öllu saman. Enda er öryggisgæslan í kringum okkur rosaleg. Megum ekki gera neitt eða fara neitt án þess að hafa lífverði með okkur. Bara vera inn á herbergi og horfa út um gluggann á þessa paradís sem umhverfið hérna er. Erum reyndar búnar að vera það uppteknar að ég get ekki sagt að ég hafi haft tíma til að láta mér leiðast. En þetta er sko hörkuvinna!! Erum á fullu allan daginn að gera hitt og þetta og sofum í mesta lagi 5-6 tima á nóttunni, endurtek, mesta lagi.. Og svo þarf maður líka alltaf að vera að hugsa um útlitið, förðun, hár, klæðaburð, þannig að þetta tekur á. Grunar að ég eigi ekki eftir að nenna að greiða mér né mála mig vikum saman eftir að ég kem ;)
Annars eru stelpurnar sem ég er búin að kynnast hérna alveg ofsalega fínar. Þær eru allar frá Norður Evrópu enda er okkur skipt niðrí hópa eftir heimsálfum þetta árið.
En það er hins vegar ótrúlegt hvað sumar af hinum stelpunum hérna eru miklar dívur! Algjörar prímadonnur sem eru hérna af aðeins einni ástæðu og engri annarri og það er að hirða dolluna. Alveg magnað að fylgjast með t.d Ameríkustelpunum sem komu með 7-8 ferðatöskur fullar af dressum og kjólum og mæta í sínu fínasta pússi og stífmálaðar og greiddar í venjulegan dinner hérna á hótelinu. Örlítið "to much" ;)
En ef ég á að vera alveg hreinskilin við ykkur þarna heima á fróni, því ég veit að þið eruð mörg að spá í þessu.. Þá held ég að ég eigi ekki break í þessar drottningar :/ Margar hverjar búnar að leggjast undir hnífinn oftar en einu sinni, með hárlengingar og gerviaugnahár og tilbúnar ræður og svör við öllu.. Ekki alveg samkeppnishæft.. ENN ég geri mitt besta við að kynna land og þjóð og í leiðinnu njóta þess að vera þátttakandi í þessu ævintýri ;)

Í dag vorum við svo í bikíní myndatöku og sjónvarpsupptöku sem gekk bara ágætlega. Held ég.. Var kannski oggulítið stressuð að fara að tala í myndavélina en ég vona að ég hafi náð að fela það..
Svo fengum við að fara í fyrsta skipti í sundlaugina sem ég er búin að horfa á út um gluggann síðan ég kom!! Virkilega ánægjulegt að fá að njóta sólarinnar þó það væri ekki nema í 2 tima :)Framundan í kvöld er svo dinner og æfingar fyrir hæfileikakeppnina sem er næstu helgi. Erum um 60 stúlkur sem vilja taka þátt en þau ætla að velja úr 25 stelpur í kvöld sem fá að fara á sviðið um helgina. Og fyrir þá sem ekki vita þá undirbjó ég lítið dansatriði sem ég ætla að reyna að komast í gegn á ;)
Þannig að það er allt gott að frétta héðan frá Kína.. Þarf kannski reyndar að viðurkenna smá heimþrá síðastliðna nótt, í fyrsta skiptið hér úti sem betur fer.. En það var líka mjög sérstök ástæða fyrir því og tengist manneskju sem er mér mjög kær. En þá kom líka litli bangsinn sem Birna danskennari gaf mér að góðum notum og opinbera ég það hér með á veraldarvefnum að ég sofnaði með bangsa í fanginu í fyrsta skipti síðan ég veit ekki hvenær, hehe.. :)
En jæja.. Komið gott í bili.
Bið að heilsa heim!
Ykkar,
UB.


Bloggmynd


... Komin á áfangastað ...

Jæja ... Þá er ég komin til Sanya og sit hér á trufluðu Sheraton Hóteli. Þetta er algjör paradís á jörð!! Umhverfið æðislegt og hótelið eitt það flottasta sem ég hef séð :)
Ferðalagið gekk stórslysalaust fyrir sig ... Flug til London, þaðan til Hong Kong (13tíma flug!!) þar sem ég gisti eina nótt á geðveiku hóteli í "home alone 2" fíling þar sem ég var færð yfir á þvílíkt flott herbergi því konan í móttökunni komst að því að ég væri Miss Iceland ;) Svaf reyndar ekkert þessa "nótt" mína þarna enda hábjartur dagur heima á Íslandi. Og svo fékk ég það líka í hausinn í dag þar sem ég er búin að vera að deyja úr þreytu en ég flaug hingað til Sanya snemma í morgun. Tímamunurinn er 8 tímar og ég er á undan ykkur heima ... Frekar erfitt að venjast og ég sit núna algjörlega stjörf, búin að vaka í meira en sólarhring og að bíða eftir því að komast í bíkíní mátun. Jáh, hasarinn er sko byrjaður ...! Búin að hitta meirihlutann af hinum drottningunum og þær eru misjafnar eins og þær eru margar, segi ekki meira ;) Var svo heppin að lenda með Miss Denmark í herbergi þannig nú snakker vi bare dansk sammen næsta mánuðinn.
Á morgun er stór dagur, morgunverður með núverandi Miss World, hádegisverður með hótelstjóranum, skrúðganga, og red carpet kínversk verðlaunaafhending sem við verðum viðstaddar og fáum að ganga dregilinn ;)
Heimþráin hefur ekkert látið á sér kræla, en ég neita því ekki að ég hjartað barðist ansi ótt í flugvélunum á leiðinni og ég var kannski pínulítið lítil í mér, enda að lesa flugvélabréf frá vinkonunum og mömmu þar sem ég táraðist og hló upphátt til skiptist. Takk elzkurnar mínar fyrir bréfin og fyrir að vera yndislegustu vinkonur í heimi :)
En ég verð að fara að sofa, er að hníga niður hérna..
Skrifa meira seinna ;)
Knús og kossar til Íslands!
-Uns



Bloggmynd


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband