..Fatlafól..

Jájá, þá er það staðfest! Eg er orðin fatlafól!! Komin með hægri hendina í umbúðir og fatla en sem betur fer var hún ekki brotin eða brákuðBrosandi Hefði samt eiginlega átt að reyna að lenda á vinstri hliðinni, ansans klúður, það hefði verið mun hentugra þar sem ég er rétthent.

En það er ekkert grín að detta svona í háum hælum og síðkjól! Ekki séns að setja fæturna fyrir sig svo maður fellur bara lóðréttur beint í gólfið, eins og kannski margir sáu á videoinu sem kvöldfréttirnar í gær sýndu alls 4 sinnum!! Greinilega gúrkutíð í fréttum á ÍslandiGlottandi

Annars er gaman að því,  að ef við byggjum við sama réttarkerfi og ríkir í Bandaríkjunum þá hefði ég orðið milljónamæringur frá og með miðvikudagskvöldinu og skaðabótunum rignt yfir migGráðugur Enn sú er auðvitað ekki raunin og sit ég því eftir með sárt enniðGlottandi Og fjóra marbletti sem dafna vel, en þessi stærsti á mjöðminni er orðinn dökk fjólublár og farinn að líkjast ískyggilega mikið lögun Íslands.. Verður gaman að fylgjast með því hvernig hann þróast..!

Afmælisdagurinn í gær varð svo bara einkar ánæjulegur eftir allt saman. Fékk eina afmælisgjöf sem var algjör draumur, en svo er í vinnslu lopapeysa frá Mams, sem er stefnt á að verði tilbúin fyrir Landsmót hestamanna í sumarBrosandi

Ætla hins vegar ekki að halda uppá afmælið með hefðbundnu sniði í ár, heldur aðeins taka allra nánustu vinkonurnar og fara með þær í óvissuferð um helgina..!

Þær hafa ekki hugmynd um hvað þær eru að fara að gera, en það eina sem ég hef sagt þeim er að þær verða sóttar á laugardagsmorgun kl.11 og þá eiga þær að vera búnar að kjósa og tilbúnar í hvað sem er!!

Hlakka ekkert smá til að gera þetta með þeim! Þær eiga svo skilið að gera e-d svona skemmtilegt og öðruvísi.  Búnar að standa við bakið á mér eins og klettar síðastliðið ár og verið bestu vinkonur sem hægt er að hugsa sér!

Verst er að það lítur allt út fyrir að það muni rigna á okkur, en þá er það bara pollagallinn og reunion á Eyjastemmninguna frá því í fyrrasumar Glottandi

Annars er ég bara heima í dag, "hlúa að sárum mínum" og í mömmuleikBrosandi Við Steinsson erum búnar að vera að passa alla vikuna, 3 mánaða gamla prinsessu sem mun bera nafnið Viktoría Katrín. Hún er tiltölulega nýkomin í fjölskylduna en er verðandi stjúpdóttir Steinars bróður.

Þetta eru hinsvegar smá viðbrigði fyrir mann að prufa svona "leik". Hef ekki verið í kringum ungabörn síðan Villi bróðir fæddist og hann er 14 ára í dag! En þetta er svo auðvelt þegar maður kemst í gírinn, sérstaklega þegar börnin eru svona mikil ljós eins og þessi skvísa!

En jæja, held hún sé að vakna.. Þá þarf að láta skipta á sér, fá að drekka o.s.frv o.frv.  Planið er svo að fara með hana í bíltúr og klára að útrétta fyrir óvissuferðina, en það er ansi margt sem þarf að huga að því dagskráin er þétt allan morgundaginn og stelpunum verður ekki skilað heim fyrr en á sunnudagsmorgun..Ullandi

Góða helgi öll sömul!

-Megið vænta skýrslu um óvissuferðina eftir helgi-Glottandi

-UB


..Fall er fararheill..!!

Elsku Sif, Ásdís og Jóna Kristín, innilega til hamingju með árangurinn í gær! Þið eruð æðislegar í einu orði sagt!!Brosandi Og það gildir líka um allar hinar stúlkurnar í keppninni í gær, stóðuð ykkur eins og hetjur og gerðuð þetta kvöld yndislegt! 

En þetta var nú aldeilis skemmtileg afmælisgjöf sem ég fékk rétt eftir miðnætti í gær á fyrstu mínútum afmælisdagsins! EN ég "kaus", vægast sagt, að fljúga á hausinn á sviðinu á Broadway!

,,En hvaða, hvaða".. Þurfti ekki hvort sem er aðeins að krydda upp í þessari keppni! Komið gott af því að stelpurnar "næstum því detti" og flott að sjá fótunum gjörsamlega kippt undan einni!Svalur 

En það er líka nákvæmlega það sem gerðist, gólfið þarna var eins og skautasvell og ákkúrat á þessum hluta sviðsins hafði gleymst að skúra eftir bón, með fyrrgreindum afleiðingum. Sendi "þakkir" þeirra sem áttu að sjá um það.. Þið eruð  án efa komin á svarta listann hjá mér!

Skil reyndar ekkert í henni ömmu Gull að hafa ekki leitt mig á sviðinu eins og hún er vön að gera, hefur verið ansi upptekin við saumavélina í gærkvöldi, þessi elska. En ég efast um að hún sleppi af mér takinu héðan í fráGlottandi

En ég er óbrotin og kórónan líka, ótrúlegt en satt. Einungis með 3-4 GÓÐA marbletti sem eiga eftir að minna mig á þetta næstu daga, en ég held að ég eigi met í því safna mér skemmtilegum marblettum sem myndast við furðulegustu aðstæður.

 Er farin út í góða veðrið og að njóta þess að vera orðin árinu eldri..! Glottandi

 -Uns


..Heima er best..

Þegar heim var komið og ég búin að sofa úr mér þreytu síðustu daga lá leiðin beina veginn í matarklúbb með gömlu vinunum. Þar voru mætt Einar og Sandra, Hjörtur og Hera og Edda mín, en Valdi hennar þykist vera að læra á Flórída svo hann var fjarri góðu gamni. Við skemmtum okkur konunglega og alltaf jafn gaman að rifja upp gamlar minningar og hlæja sig máttlaus yfir fíflaganginum sem við höfum tekið uppá í gegnum árinHlæjandi

Daginn eftir var svo hestamót uppí mosó og sætustu tvíburar í heimi að keppa! Þeir enduðu þeir líka báðir með verðlaunapening um hálsinn og stóðu sig eins og hetjur!Glottandi

Næstu dögum eyddi ég svo meira og minna í hesthúsinu og einhverju stússi en auk þess var á dagskránni ein myndataka og tvö viðtöl eða svo. Ég fór líka á stóru reiðhallarsýninguna í Víðidal og á dansiball með hljómsveitinni Hunang en þar voru ófá danssporin tekin við gamla góða slagara. Brjálað stuð!Svalur

Í síðustu viku var ég svo viðstödd hátíðarkvöldverð í Perlunni til heiðurs ræðismönnum Íslands allsstaðar af úr heiminum. Mér var boðið af háttvirtum utnaríkisráðherra, Geir H. Haarde og sat til borðs með honum og stórglæsilegri konu hans henni Ingu Jónu. Aðrir á mínu borði voru m.a heiðursræðismenn frá Bretlandi, Indlandi og Hong Kong.

Mér á vinstri hönd sat ræðismaður Íslands frá Indlandi og er hann einstaklega áhugaverður maður. Grunar að það vaxi bláir peningar á trjánum í garðinum hjá honum en hann á íbúðir í minnst 5  borgum í heiminum. Við spjölluðum mikið og skemmtum okkur vel og áður en kvöldið var á enda var búið að slá því föstu að ég mundi koma út til Indlands að heimsækja þau hjónin síðar á árinu. Meira segja búin að heyra frá þeim og alles þannig að þetta er eitthvað sem er að fara að gerast. Glottandi

Þetta kvöld rættist einnig langþráður draumur. En ég fékk tækifæri til að hitta og spjalla við Frú Vigdísi Finnbogadóttur sem er kona sem ég met ofsalega mikils. Hún gaf mér nokkur góð ráð sem ég mun án efa geyma fyrir aftan eyrað lengi vel.

Daginn eftir Perluna fór ég svo í skólaheimsóknir í tengslum við verkefni sem ég hef verið að vinna að, með félagi Landsbyggðarvina. Ég er titluð verndari verkefnisins og er það búið að vera í gangi síðan fyrr í vetur. Fyrsti hluti þess gekk út á ritgerðarvinnu  grunnskólanema þar sem þau skrifa niður hugmyndir um hvað sem má gera til að betrumbæta umhverfið í þeirra eigin bæjarfélagi.  Þá völdum við úr nokkrar ritgerðir og hlutu þeir unglingar sem áttu þrjár bestu hugmyndirnar verðlaun fyrir vikið.

Síðari hluti verkefnisins var svo verklegur, þar þurftu krakkarnir að útfæra hugmyndirnar sínar í máli,myndum eða á annan krefjandi hátt og í síðustu viku fór ég í nokkrar skólaheimsóknir og kynnti mér það sem þau hafa verið að vinna að.

Verðlaunafhending fyrir síðari hluta verkefnisins fer svo fram á morgun föstudaginn 19. maí og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þann skóla sem vinnurBrosandi

Síðan er það bara same old same old, hestar, hesthús, hestamót, hestasýningar. Vinkonur mínar tjáðu mér það um daginn að þær væru komnar með áhyggjur af því að ég myndi á endanum breytast í hest  og fannst gott merki um þróun í þá átt þegar þær fréttu af mér í reiðstígvélunum og reiðgallanum með medalíu um hálsinn undir úlpunni, á videoleigu niðrí bæ! Litli LúúðinnHlæjandi

..Frekar skítt með Eurovision úrslitin  í kvöld.. Enn "kemur Ísland", gerum betur næst!

Farin í svefn..

-UB.


..Vinnan heldur áfram..

Frá Malbork lá leiðin í næsta bæ sem heitir Gdansk og er frægur fyrir hvítu strendirnar sínar. Þar er stefnan að skjóta bikíní myndir af keppendunum og filma "Vote for me" þættina. Við komuna þangað var það sama sagan, móttökuhátíð, blaðamannafundur og hittingur með borgarstjóra, ásamt heimsókn á leikskóla þar sem börnin dönsuðu fyrir mig pólska þjóðdansinnBrosandi

Eftir dvölina í Gdansk var kominn tími til að snúa við og keyra aftur til Varsjá. Og úff.. aðrir 5 tímar í bílnum sem við vorum búin að vera samgróin við síðustu daga!!

Komum til Varsjá seint seint um kvöld og gistum á flugvallarhóteli þar sem við  vorum að fara í flug morguninn eftir. Ég skreið upp í rúm um leið og færi gafst og var meira segja of lúin til að ná mér í kvöldmat.

Flugið var kl. 8  og allur hópurinn ansi syfjaður. Við vorum að fara til borgarinnar Wroclaw og það er um klukkutímaflug þarna á milli. Steinsofnaði um leið og ég settist í vélina og vaknaði ekki fyrr en við lendingu sem var nú ekkert voðalega hentugt þegar uppi var staðið þar sem pressan beið okkar beint fyrir utan flugvélina og ég enn með stýrurnar í augunum!Hissa

Það fyrsta sem við gerðum var að fara í smá göngutúr með öllum blaðamönnunum um aðalgötuna og átti ég að vera með kórónuna á mér. Það fannst mér áhyggjuefni því að í fyrsta lagi þá voru við úti á miðri verslunargötu borgarinnar, öðru lagi er ekkert sérstaklega auðvelt að ganga með kórónuna sem er rétt tilt á höfuðið á manni og þá sérstaklega í hælum á hellulagðri götu.

Eftir göngutúrinn hittum við svo borgarstjórann og héldum blaðamannafund og má borgarstjórinn eiga það að hann er ekkert smá hress og skemmtilegur. Þar af leiðandi datt ég í gírinn og sagði meira að segja einn, tvo brandara á fundinum, til tilbreytingarSvalur

Eftir fundinn tók við hádegisverður á voða flottum pólskum veitingastað og eftirmiðdeginum var varið í blómasölu á torginu til styrktar barnaspítala sem við heimsóttum svo enn síðar um daginn. Um kvöldið snæddum við svo mjög þægilegan casual kvöldverð með bæjarstjóranum og konu hans, þar sem mikið var hlegið og SUNGIÐ! Ekki spurja mig afhverju!? Líklega einhver pólsk hefð sem ég hef ekki kynnst áður! Glottandi

Morguninn eftir sátum við svo öll opinberann morgunverðarfund þar sem því var slegið var föstu að í Wroclaw mundi fara fram heljarinnar tískusýning með öllum keppendunum í haust. Og þar verður besta módelið verður valið.  Örugglega mjög töff og öðruvísi viðburður en það var ekkert svona þegar ég var í keppninni í fyrra.

Svo skutlað aftur upp á flugvöll en okkur til mikillar mæðu var seinkun á öllu flugi þennan dag. Við þurftum að húka á vellinum í Wroclaw í eina þrjá tíma sem varð til þess að við misstum af tengifluginu okkar frá Varsjá til London og ég þarf af leiðandi af fluginu mínu heim til Íslands um kvöldið. Þetta fannst mér nú toppa allt saman.. Var búið að hlakka endalaust til að komast heim!! Enda ansi strembin ferð frá fyrsta degi...Fýldur

Við komumst reyndar til London með seinna flugi um kvöldið eftir mikið bras og þras en ég neyddist til að gista á flugvallarhóteli við Heathrow um nóttina þar sem Icelandair vélin var farin og komst ég ekki heim fyrr en seint daginn eftir.

Samt sem áður, alltaf jafn yndislegt að koma heim og fá að hvíla sig aðeins, en ég held ég hafi sofið samfellt í um 15 tíma þegar ég loksins komst í rúmið mitt og á koddann minn sem er mér einstaklega PRECIOUSGlottandi

Lög ferðarinnar voru án efa,

Just Like Heaven með Katie Melua  og

Better Together með Jack Johnson.

-Voru spiluð í tíma og ótíma og á repeat í ipodnum hvenær sem færi gafst..

Þangað til næst, farið vel með ykkur..Brosandi

og GO Silvía Nótt á sviðinu í kvöldUllandi 

-Uns


..Nótt í kastala..

Ég byrjaði daginn eldsnemma á að pakka niður föggum mínum og shine-a mig til. Svo lá leiðin í sjónvarpsviðtal í morgunsjónvarpinu og gekk það bara ágætlega, fyrir utan, að það fór fram á pólsku!!

Ég var með stykki í eyranu þar sem ég heyrði í túlk sem þýddi fyrir mig spurningarnar sem ég fékk. Þessi samskipti í gegnum eyrnastykkið gengu nú hálfbrösulega til að byrja með en ég held að þetta hafi nokkurnveginn sloppið fyrir horn. Ég fékk nú reyndar alltaf þýðinguna frá eyranu svona fimm sekúndum eftir að ég var spurð, þannig að ég leit út eins og ég væri frekar treg, en það var bara fyndið! ;)

Strax eftir útsendinguna vorum við sótt af langferðarbíl en það er nafn með réttu því við vorum svo sannarlega á leiðinni í langferð. Mun lengri en við héldum allavega! Ferðinni var heitið bæjar sem heitir Gzysko til að skoða falleg vötn og skóga og sjá hvort hægt væri að fara með keppendurna í september á þennan stað. Ferðin þangað tók hvorki meira né minna en 5 klukkutíma!! Og þessi langferðarbíll var farinn að vera ansi þröngur, enda hópurinn stór..

Þegar við komum á áfangastað tók hálfur bærinn á móti okkur með lúðrasveit og látum og fjölmiðlarinir biðu eins og villidýr eftir bráð sinni. Í móttökunni hittum við bæjarstjórann og héldum blaðamannafund, en strax eftir það fór ég í heimsókn á barnaspítala í bænum á meðan hinir í hópnum skoðuðu aðstæður.

Þetta var stutt heimsókn, en samt sem áður var tekin ákvörðun um að halda íþróttakeppnina milli Miss World þáttakenda 2006 á þessum stað. Næst lá leiðin í bæ sem heitir Malbork. Þangað voru aðrir tveir tímar í þessum blessaða bíl og ég var orðin snillingur í að dotta í hinum ýmsu stellingum í sætinu sem ég hafði. Held að hinar ýmsu rútuferðir í menntaskóla hafi gert þar gæfumuninn því æfingin skapar meistarann og það á þá líka við um svefnstellingar í rútu, enda var frægasta rútuferðin frá þein árum, 12 tíma rútuferð til Neskaupstaðar og  12 tíma til baka í tilefni Gettu Betur!! (já dauði, en var samt þess virðiGlottandi)

Við komum til Malbork seint um kvöldið og þegar við keyrðum inn í bæinn keyrðum við inn í hina svörtustu þoku. Ég vissi ekki hvar við ættum að gista og í rauninni hafði ég ekki hugmynd um hvað við vorum að fara að skoða þarna, enda ekki sú fyrsta á listinum til að upplýsa um dagskrá.

Get því ekki sagt annað en mér hafi heldur betur brugðið í brún þegar við renndum upp að gígantískt stórum kastala og var sagt að þar ættum við að vera yfir nóttina. Þessi kastali er frá 14. öld og sá elsti og stærsti í heiminum sem stendur enn í sinni upphaflegu mynd.

Við byrjuðum á að snæða kvöldverð með bæjarstjóranum og þar sem við vorum örlítið sein á ferðinni var enginn tími til að skipta um föt eða fríska sig upp og hef ég sjaldan verið jafn þreytuleg og þetta kvöld :/ Spjallaði þó við bæjarstjórann og umsjónarmann kastalans undir matnum og gat ekki setið á mér að spurja þá að því hvort það væri reimt í kastalanum. Þeir horfðu á mig stórum augum og sögðu svo: "Að sjálfsögðu er reimt hérna". Það væri nú eitthvað að ef svo væri ekki!!!Þarna fóru fram mörg stríðin fyrr á öldum og pólverjar notuðu kastalann m.a til að verjast þjóðverjunum í seinni heimstyrjöldinni.

Humm.. Get nú ekki sagt að ég hafi orðið mikið rórri eftir þessar upplýsingar, enda alltaf haft óstjórnlegan áhuga á öllu yfirnáttúrulegu og trúi svo sannarlega á það, að það taki eitthvað við eftir þetta líf.. Hvað það nú er, læt ég liggja á milli hluta.

Fékk nú eiginlega pínulítinn hroll þegar ég gekk ein eftir dimmum hótelganginum og horfði óþreyjufull á tölurnar á hurðunum, leitandi eftir númerinu sem var á lyklinum mínum. En gat nú skeð, eins og oft áður hafði ég fengið svítuna í þessum hluta kastalans og hún var eins langt í burtu frá hinu fólkinu og hægt var.

Herbergið sjálft var einstaklega gamaldags, lágir hurðarkarmar, eldgömul húsgögn og rúmið öðruvísi en maður á að venjast, en koddinn var innbyggður í dínuna!!  Þarna var ég ein með sjálfri mér, gat ekki hlustað á tónlist eða neitt því innstungurnar voru of gamaldags, og gerði því lítið annað en að hræða sjálfa mig. Heyrði alls konar hljóð, brak og bresti og endaði á því að þurfa að hringja heim til að dreifa huganum ;)

Eftir mjög hughreystandi símtal að heiman, hélt ég áfram að reyna að sofna, en rúmfötin sem voru á rúmminu voru eitthvað sem ég er ekki vön. Silkirúmföt, bæði lakið og sængurfötin og því fór ég í rúmið í joggaranum. Þegar mig tókst loksins að sofna dreymdi mig og dreymdi skrítnustu hluti. Konur með hár niðrá hæla og ég veit ekki hvað og hvað! En morguninn eftir vaknaði ég við að sólargeislarnir streymdu inn í herbergið og allur taugatitringur frá kvöldinu áður var á bak og burt. Og þá fyrst sá ég út um gluggann hversu hrikalega stór og stórfenglegur þessi kastali er og hlakkaði mikið til að sjá meira af honum.

Það fyrsta sem við gerðum þennan dag var að heimsækja barnaheimili fyri börn sem búið höfðu við heimilsofbeldi. Þau höfðu undirbúið söngatriði fyrir mig og sungu bæði á ensku og pólsku og voru í einu orði sagt yndisleg! Brosandi

Eftir það lá leið okkar á skrifstofu bæjarstjóra þar sem haldinn var enn einn blaðamannafundurinn og eins og oft áður kom prince polo til tals.. Eftir fundinn heimsóttum við svo barnaspítala í bænum á meðan fólkið skoðaði kastalann og umhverfi hans enn betur, en við hittum þau svo stuttu síðar og fórum í smá útsýnistúr um þessa stórkostlegu byggingu. Planið er svo að koma með allar 100 stelpurnar þangað í september og leyfa þeim að upplifa það að gista í draugakastala. Spennandi! ;)

Ekki meira í bili... Það er stutt í næstu færslu þar sem þið fáið að heyra hvernig þessari ferð lauk!

-UB

 

 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband