Færsluflokkur: Kína

..Dofin..

Hvað sagði ég ykkur.. Ætlaði að vera dugleg..!Glottandi

Fyrsti sólarhringurinn liðinn og allt að komast í rétt horf. Morgunmatur, "lunch" og "dinner" fara fram í stórum sal hérna á hótelinu og allar stelpurnar borða á sama tíma. Ég kem yfirleitt með mínum chapperon þegar þær eru á klára og borða í flýti, þar sem þarna eru yfir hundrað stelpur sem sækjast eftir titlinum sem ég ber og fylgjast því með mér eins og "villidýr bráð sinni", hehe.. Lenti einmitt í því í morgun að ein þeirra kom upp að mér og vildi mynd og þá var ekki aftur snúið, þær komu hver af annarri og ég eyddi öllum morgunmatnum í myndatökur, sem er ekki beint það sem maður kýs svona í morgunsárið. En þetta fylgir víst og þær eru nú margar algjör krúttBrosandi

Eftir morgunmat fékk ég svo tíma til að læra til hádegis og tók ég rispu í kröfuréttinum. Eftir hádegi var sama og enginn frítími í boði en ég þurfti að sinna ýmsum verkefnum á skrifstofunni á meðan stelpurnar voru í myndatökum um alla borg og á æfingum fyrir stóra sýningu sem verður hér annað kvöld. Ásdís okkar búin að standa sig vel og bar af í fjólubláum blómakjól þegar ég kom niður í morgun..

Rétt í þessu var ég koma upp á herbergi klædd í mitt fínasta, en um kvöldmatarleytið var ég viðstödd blaðamannafund fyrir utan leikhúsið þar sem krýningin 30. sept fer fram. Var mikið spurð að því hvort ég yrði ekki sorgmædd að gefa frá mér kórónuna en að sjálfsögðu er bara komin tími til að næsta stúlka taki við og ég haldi áfram með mitt líf. Eftir fundinn var ég svo beðin um að ýta á takka sem gerði það að verkum að hundruðir flugelda fóru í loftið og byggingin var lýst upp í bláum litum kórónunnar en hún verður svo þannig út mánuðinn.

          missworld.com

Þarna sjáið þið bygginguna, kórónuna og keppendurna standa fyrir framan. Alveg fremst stend svo ég í fullum skrúða ásamt borgarstjóra Varsjá.

 

Fyrst ég er að tala um klæðnaðinn þá er gaman að segja frá því að ég er klædd glæsilegri vínrauðri kápu sem er í miklu uppáhaldi hjá öllum hérna. Hún Dorrit var svo yndisleg að lána mér hana fyrr á árinu en hún hefur vakið mikla athygli. Undir borðið (í gríni) köllum við hana reyndar Harry Potter kápuna því hún er svoldið svoleiðis, að sá sem klæðist henni gæti vel búið yfir galdrakraftiGlottandi

Enn þá er fyrsti dagurinn í höfn og allt gengið nokkuð vel fyrir sig.. Ég reyndar pínulítið dofin, en ég vinn vonandi úr því með tímanum enda með öll verkfæri til þess og opin fyrir öllu. Byrjaði að hlusta á hugleiðslu og slökunardisk í gærkvöldi þar sem kennd er rétt öndun, en það er eitthvað sem ég þarf virkilega að kynna mér þar sem álagið nær allt of auðveldlega tökum á mér. Ætla svo í langt  og heitt bað á eftir og kveikja á kertum en þau voru eitt það fyrsta sem ég pakkaði fyrir ferðina enda stór hluti af mínu daglega lífi..

Hugsa heim.. 29 dagar eftir..

 -Uns

 

Ps. Er orðinn Skype vædd, LOKSINS!! Naga mig í handarbökin fyrir að hafa ekki reddað þessu fyrr! Þannig að vinir og vandamenn, látið í ykkur heyraBrosandi


..Ágætis byrjun..

Þá er byrjunin á endanum hafin. Ég komin út í síðustu "ferð" mína sem Ungfrú Heimur og að sjálfsögðu er áfangastaðurinn Pólland.

Eins nálægt Íslandi og Pólland er t.d miðað við  Kína, þá tók það mig samt um 12 klst. allt í allt að komast hingað. Með mér í för var fulltrúi Íslands í ár, hún Ásdís Svava, en við flugum saman til Köben og þaðan hingað til Varsjá.

Stemmningin hérna á hótelinu minnir mig óneitanlega á tímann sem ég eyddi í þessari keppni í Kína í fyrra. Fegurðardrottningar í háum hælum sprangandi út um allt, að sjálfsögðu í fylgd "shapperona" sem verða að fylgja þeim hvert fótmál. Farangurskerrur í tugatali en þessar skvísur eru flestar með um 5-6 töskur á mann og sumar hátt í 10! 

Ég verð nú bara að segja það, að ég tók allt sem ég mögulega gat og vildi með mér og ég náði bara að fylla tvær töskur.. Önnur er hinsvegar ANSI þung þar sem allavega 7 þykkar laganámsbækur eru með í för!

Stelpurnar/keppendurnir eru allar á sömu hæðinni, tvær og tvær í herbergi en Ásdís lenti með Danmörku alveg eins og ég í fyrra. Ég og fleiri starfsmenn MW fengum svo svítur á öðrum hæðum hótelsins sem þýðir ró og næði og nóg pláss til að breiða úr sérBrosandi

Þegar ég kom inn á herbergi byrjaði ég á hinni venjulegu rútínu minni en hún felst í því að endurraða hlutum herbergisins eins og ég vil hafa þá. Losa mig við alla óþarfa bæklinga og dót ofan í skúffur, færa símana, fikta í loftræstingunni og koma svo mínum hlutum fyrir í röð og reglu.  Myndin af mér og ömmu komin á náttborðið  og litli verndarbangsinn minn kominn á rúmgaflinn. Held reyndar að ég sé orðinn örlítill sérvitringur þegar kemur að því að dvelja á hótelum og mundi líklega brosa út í annað ef ég fengi að fylgjast með sjálfri mér koma herbergjunum í það horf sem ég vil hafa þau í.. Glottandi

Annars er ég hálffegin því að vera komin hingað út og verði hér í mánuð. Þurfti aðeins að komast í burtu og eyða tíma með sjálfri mér, en planið er að nota tímann VEL.. Fyrst og fremst læra af mér rass..... þar sem ég kem heim beint í miðannarpróf sem ég er harðákveðin í að standa mig í. En ég hef einnig einsett mér að kynnast fleiri áhugaverðum hlutum þennan mánuðinn sem ég segi ykkur betur frá seinna.

Ég mun vera ofsalega dugleg að blogga og segja ykkur frá, og segi það hér með og skrifa, að þið munuð fá færslu á hverjum degi svo lengi sem ég er í netsambandi og ef ég dett út þá reyni ég að bæta fyrir það með tveimur færslum næsta dag.

Annars skal ég hundur heita!Glottandi

Farið vel með ykkur..

Kv. Uns


..Síðustu vikur..

Nú er skólinn byrjaður og kominn á skrið og tilfinningin bara góð að vera sest aftur á skólabekk. Þessi önn verður reyndar tiltölulega óhefðbundin hjá mér þar sem ég fer út í næstu viku og kem ekki aftur heim fyrr en 1 okt..! Verð því að taka allar þungu lögfræðibækurnar mínar með mér og vera dugleg að læra á meðan ég túra um Pólland með 110 fegurðardrollum..Glottandi

Síðustu þrjár vikur hafa heldur betur verið afdrifaríkar. Til að byrja með fórum við Straumfjörð í sitthvora áttina en það var bara eitthvað sem gekk ekki upp og þannig er það víst stundum. Einnig hefur gífurlega mikið verið spáð og spegúlerað enda styttist í það að ég klári Miss World árið mitt og sé laus undan þeim samning. Margt skemmtilegt í bígerð sem ég hlakka til að hella mér útí, en það bíða eftir mér nokkur góð tilboð í formi auglýsingasamninga. Get lítið sagt eins og er, en eitt er víst að ekkert lát verður á ferðalögum hjá mér næstu mánuðina eða árið, en leiðin mun liggja mikið vestur um haf til Bandaríkjanna sem og Evrópu og Indlands sem er einmitt land sem mig hefur lengi langað til að heimsækjaBrosandi

Þessa vikuna hef ég svo heldur betur tekið til hendinni. Ásamt því að hafa byrjað í skólanum þá er ég búin að vera í málningargallanum hér heima, en þar sem Steinar bróðir tók upp á því að yfirgefa okkur hérna í Árbænum þá hef ég ákveðið að flytja allt mitt hafurtask úr bílskúrnum inn í hús, í mjög kósý herbergi upp á lofti. (Eða það er allvega að verða mjög kósý eftir smá "makeover"..Glottandi)

En lögfræðibækurnar bíða víst ekki endlaust eftir mér, best að fara að sinna þeim greyjunum..

Þangað til næst..

-Uns

 


..Danskir dagar..

Helginni eyddi ég í þeim yndislega bæ á Snæfellsnesinu, Stykkishólmi.. Þar stóð hátt hátíðin danskir dagar með öllu tilheyrandi svo sem bryggjusöng, útitónleikum og flugeldasýningu í boði trillukallannaBrosandi

Við eigum gamalt fallegt hús þarna í bænum og mams gerði sér lítið fyrir og hélt partý á pallinum okkar þar sem við sátum öll saman við logandi eld og spjölluðum og sungum við gítarspil fram eftir nóttu.

Þarna áttum við fjölskyldan virkilega ljúfar stundir í skemmtilegum hópi fólks sem er ómetanlegt þegar lífið er í lægð og maður minnist þess að mikilvægast af öllu er fjölskyldan, vinirnir og fólkið sem manni þykir vænt um.

Skellti inn nokkrum myndum sem fanga stemmninguna ansi velBrosandi

Og að lokum vil ég setja niður þessar línur með von um að sem flestir tileinki sér mátt þeirra..

Guð gefi mér æðruleysi

 til að sætta mig við það

 sem ég get ekki breytt,

kjark til að breyta því sem

 ég get breytt

og vit til að greina þar á milli.


..Borgin sem aldrei sefur..

Já New York stóð alveg fyrir sínu.. Fyrsta skipti sem ég kem þangað og ég varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum..!Brosandi

Vorum sótt á flugvöllinn með stæl, en eftir okkur beið glæsivagn sem er víst ódýrara að leigja heldur en að taka tvo leigubíla. Hótelið var á besta stað, höfðum útsýni niðrá Times Square  og vorum fimm mínútum frá Central Park.

 Times Square

Sýnist einhverjir gamlir löggutaktar hafa komið upp í mér, hvíli höndina á "beltinu" hehe..  ;)

 

Dagarnir voru svo  teknir snemma, kannski ekki alveg af fúsum og frjálsum vilja en tímamismunurinn spilaði þar stóra rulluGlottandi Þegar við höfðum tíma á milli erinda tókum við frasanum "shop till you drop"  frekar bókstaflega þar sem við þræddum göturnar þangað til við virkilega gátum ekki meira og næstum öll kvöldin komnar í rúmið kl. 10.

Aðalmarkmiðið með þessu búðarrápi var þó að finna kjól fyrir lokakvöldið í Póllandi, til að klæðast þegar ég krýni næstu stúlku sem hlýtur titilinn Miss World. Því markmiði var náð og ég í skýjunum með kjólinn. Mun meira að segja líklega getað notað hann aftur í framtíðinni við eins og eitt mjög sérstakt tilefniGlottandi

Í ferðinni heimsótti ég m.a Empire State bygginguna, borðaði morgunmat við Rockfeller Center og kíkti niðrá Ground Zero. En planið er að fara fljótlega aftur og gera þá þessa helstu túristahluti en þrír dagar eru alltof stuttur tími til að meðtaka þessa borg!

Annars er gott að vera komin heim. Sé fram á ágætis frí frá ferðalögum þangað til ég flýg næst til Póllands í lok mánaðarins. Styttist í að skólinn byrji en á mánudagsmorguninn verður maður mættur með tölvuna sína niðrí HR og byrjaður að stúdera lögfræðina á ný.

Þrátt fyrir flugþreytu í gær skellti ég mér í Rockstar hitting með stelpunum.. Verð nú að segja fyrir mitt leyti að mér finnst þessi þáttaröð ansi langdregin og á Magni alla mína samúð að þurfa að hanga þarna fjarri lífi sínu hér heima.

Hversu fyndið væri samt ef hann slægi þessu bara upp í kæruleysi og tæki eins og eitt "Á móti sól" lag til að hrista aðeins upp í þessu liði.. Mundi allavega fá slatta af rokkprikum í rassvasann..!Glottandi

-UB

*Nýjar myndir


..Afsakið Hlé..

Takk fyrir þolinmæðina elzkurnar, en vegna óviðráðanlegra ástæðna varð ég að loka blogginu í þessa tvo daga.. Allar færslurnar mínar fóru í rugl og það tók svolitla vinnu að koma þeim í fyrra horf á nýGlottandi

 Annars er ég búin að hafa það gott heima síðastliðna viku en verslunarmannahelgin mín fór fram á tveimur stöðum..

Innipúkanum í Reykjavík á föstudagskvöldið og ég get ekki annað en viðurkennt að ég er opinberlega orðin ...

Jeff Who FAN!!

Mikið ofsalega voru þeir þéttir á þessum, því miður stuttu tónleikum á Nasa.

 

Seint á laugardagskvöldinu tóku örlögin svo völdin þegar mér áskotnaðist flugfar til Eyjunnar góðu sem ég hafði ekki ætlað mér að heimsækja í ár.  Fékk korter til að henda einhverju í bakpoka en það er nú það góða við þema þjóðhátíðar að þú þarft ekki neitt neitt. Hlý föt og stað til að sofa á. Annað kemur með kalda vatninuGlottandi

Þjóðhátíð stóð fyrir sínu eins og ávallt..

Dálítinn tíma tók að sofa úr sér þreytuna sem safnaðist upp þessa helgi en ég er strax komin hálfa leið úr landi aftur og í þetta skiptið er ferðinni er heitið NY í nokkurskonar vinnuferð með Mams. Nokkrir fundir verða setnir á komandi dögum en til tilbreytingar ætla ég að reyna að versla mér eins og eina flík og er búin að fá góð ráð frá NY drottningum sem þekkja borgina eins og lófann á sérGlottandi

Get ekki sagt annað en að ég sé farin að hlakka til þó að það að fljúga til USA sé ekki barnaleikur eftir hryðjuverka uppákomur síðustu daga. Enginn handfarangur leyfður sem þýðir engin fartölva, Ipod eða nokkuð til að stytta sér stundir á leiðinni..

-Yfir og út-

UBBrosandi

 

 


..Ungfrú Brasilía..

Fékk að sofa út í morgun eða alveg til 9 sem er draumur í dós í svona vinnuferðum..

Eftir morgunmat upp á herbergi fórum við í smá útsýnistúr um Curitiba en þetta er mjög falleg borg og mun meira heillandi en Sao Paulo. Þess má geta ég var að frjósa úr kulda allan tímann þar sem það er að sjálfsögðu VETUR í Brasilíu og hann er barasta skítkaldur, allavega hérna í Suður-Brasilíu.. 5 gráður  á celsíus og minnti nett á Ísland, þó ég voni nú að það sé aðeins hlýrra þar núna.

Eftir túrinn hófst svo undirbúningur fyrir aðalmálið, Miss Barzil Mundo keppnina en hún fór fram um miðjan daginn fyrir framan 1200 áhorfendur og í beinni útsendingu um alla Suður-Ameríku!! Rosalega flott keppni og eiginlega bara "mini" útgáfa af Miss World keppninni sjálfri. Greinilegt að skipuleggjendurnir vita hvað þeir eru að gera. Stelpan sem vann var voða sæt og fín eins og reyndar margar þarna, en hún talar litla ensku og verður gaman að sjá hvernig henni gengur í Miss World.

 

 

-Baksviðs tilbúin með borðann fyrir verðandi Miss Brazil-

 

 

Nýkrýnd Miss Brazil

Þegar keppnin var búin og ljósmyndarar höfðu lokið sér af var það dinner til heiðurs “Miss World” og nýkrýndri Miss Brazil Mundo hjá pólska ræðismanninum í Brasilíu. Hann bauð okkur til sín þar sem eins og flestir vita fer Miss World 2006 fram í Póllandi.

 Yfir þessum dinner var mér boðið af lækninum sem við höfðum kynnst, eins ekkert væri sjálfsagðara frítt í hvaða lýtaaðgerð sem ég vildi, sem ég afþakkaði pent..Glottandi

Ótrúlegt hvað það að fara í lýtaaðgerð hérna úti er eins og að drekka vatn. Sat meðal annars með konu á borði sem sagði mér að hún hefði lagst sextíu sinnum undir hnífinn á ævinni!!  Enda leit hún ekki mjög eðlilega út..

Í fyrramálið flýg ég svo aftur til Sao Paulo. Erum að fara í smá dekur sem verður æðislegt en það er japanski læknirinn enn og aftur sem býður okkur í heilsulind sem hann rekur þar.

Þangað til næst..

-UB                           

Ps. Enn fleiri nýjar myndir komnar í albúm -Brazil-


..Use your seat cushion for flotation..

Lofaði víst aðeins upp í ermina á mér í síðustu færslu en ég bara gat ekki bloggað síðustu daga vegna augnloka sem kusu að lokast í hvert skipti sem ég reyndi.. 

En áfram með ferðasöguna..

Daginn eftir komuna til Sao Paulo flugum við til annarrar borgar, Curitiba sem er enn sunnar í Brasilíu. Sú  flugferð gekk ágætlega farangurslega séð þar sem við vorum aðeins með handfarangur en að minnsta kosti þrisvar hélt ég að vélin væri að fara að nauðlenda og ég er ekki flughrædd! Áletrunin á sætisbakinu fyrir framan mig var heldur ekkert sérlega hressandi, en þar stóð ekki hið venjulega, "lifevests under your seat" heldur..

 

USE YOUR SEAT CUSSION FOR FLOTATION !!!!

 

Með okkur flugu samstarfsaðilar Miss World í Brasilíu og japanskur læknir sem stendur fyrir herferð gegn leghálskrabbameini hér í landi. Við komuna til Curitiba héldum við blaðamannafund til að styðja þessa herferð og kynntum boli sem verða seldir til styrktar byggingu spítala sem mun veita konum með leghálskrabba bestu mögulegu meðhöndlun sem til er.

Eftir fundinn var það svo lunch með borgarstjóranum þar sem framreiddur var "traditional" suður-brasilískur matur. Veit ekki alveg með þann mat, en þetta voru aðallega svínsfætur og svínshausar í einhverskonar baunasósu.. Matnum voru allir voða stoltir af og fræddu mig aftur og bak og áfram um sögu hans. Ætli þetta sé ekki eins og þorramaturinn heima. Okkur finnst voða gaman að leyfa erlendum gestum að smakka þó að við borðum þetta flest aðeins einu sinni á áriGlottandi

Það sem eftir var dagsins fór svo að mestu í blaðaviðtöl og myndatökur og eitt sjónvarpsviðtal í stúdíói. Þar sem við vorum farangurslausar þurfti svo að fara með okkur að versla þessar helstu nauðsynjar og þar var ekkert til sparað að hálfu heimamanna. Hefði getað valið mér hvað sem ég vildi.. Fatnað, skartgripi, skó, snyrtivörur.. Bara nefndu það og allt borgað fyrir mann! En kunni að sjálfsögðu ekki alveg við það.. Brosandi

Um kvöldið áttum við svo að mæta í dinner til heiðurs "Beauty with a purpose" prógramminu sem Miss World stendur fyrir. Keppendurnir í Miss Brazil Mundo voru margar búnar að láta gott af sér leiða og tilkynnti ég nafn stúlkunnar sem hafði náð bestum árangri og verðlaunin voru öruggt sæti í topp 5. Á sviðinu var mér svo einnig afhentur forláta verðlaunagripur fyrir vel unnin störf sem verður gaman að koma með heim. 

Þetta kvöld hitti ég einnig aftur Miss Brazil 2005 sem var með mér í Kína, en ég verð nú að segja alveg eins og er að ég kynntist henni eiginlega ekki neitt þar, enda enskan hennar eins og hún segir sjálf ekki alveg upp á 10..

-Ásamt Miss Barzil tourism og Miss Brazil 2005-

 

Ágætis dagur þegar upp var staðið allavega miðað við aðstæður en á morgun fer svo fram aðal showið, krýning Miss Brazil Mundo. Ég er víst stór partur af showinu og er með þrjár frekar stórar innkomur. Hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera en það er víst bara seinnitíma vandamál og kemur vonandi í ljós með smá fyrirvara á morgun..

-UB

Fleiri myndir í albúmi: -Brazil-


..Flughremmingar..

Fyrirgefiði elzkurnar mínar að ég er ekki búin að láta vita af mér..!! En ég hef ansi góða afsökun því síðustu dagar hafa verið í ruglinu..!

Þetta byrjaði allt snemma morguns í síðustu viku þegar ég flaug til London sem var fyrsti áfangi mun lengra ferðalags til Brasilíu. Þegar ég lenti þar upp úr hádegi tók á móti mér 6 tíma bið í næsta flug. En ég tæklaði þann tíma vel og skellti mér aðeins í bæinn í London, enda búin að tékka farangurinn alla leið og sallaróleg yfir þessu öllu saman..

Þegar ég skilaði mér aftur á Heathrow var hins vegar komið annað hljóð í skrokkinn á systeminu þar. Rafmagnsleysi í central London setti úr skorðum mikið af flugum þennan dag og við lentum í 3 tíma seinkun á flugið okkar til Parísar, bæði vegna rafmagnleysisins og svo brjálæðislegs þrumuveðurs sem herjaði á himininn fyrir ofan Heathrow. Þessi seinkun varð til þess að við misstum af fluginu okkar til Sao Paulo sem fór frá París þetta sama kvöld..

Fyrir okkur þýddi þetta nótt í París, sem var í góðu lagi mín vegna. Dauðþreytt eftir langan dag og mun betra að leggjast í almennilegt rúm heldur en að reyna að sofa úr sér þreytuna í "flugvélarúmi". Við vorum samt heppnar að fá flug strax morguninn eftir svo að þéttskipulögð dagskráin í Brasilíu raskaðist ekki of mikið.

Flugið suðreftir var svo ágætt bara.. Svaf slatta, las, horfði á video og talaði hrognamál við krúttilega afann með jólasveinaskeggið sem sat við hliðiná mér, en hann talaði bara portúgölsku og frönsku og ég spænsku og ensku. Frekar fyndin útkoma á samræðumGlottandi Hann hafði miklar áhyggjur af því að ég væri að frjósa úr kulda (sem ég var) og reddaði mér aukateppi OG lét mig hafa sitt eigið, algjör mús..Brosandi

Þegar við loksins komum til Sao Paulo var kl. um 19 sem er um 22 heima. Auðvitað, auðvitað komu töskurnar okkar EKKI og ég ætla ekki einu sinni að fara út það mál, nenni ekki að ræða það enn einu sinni, en get sagt ykkur það að nú er ég hálfnuð með dagskránna mína hérna niðurfrá og er enn töskulaus! (arrrg..)

Og hrakfallasagan er ekki búin.. Þar sem við komum 12 tímum seinna en áætlað var höfðum við misst af ansi mörgu sem búið var að bóka þennan dag. Þar á meðal milljón og sjötíu viðtölum en eins og ég sagði ykkur er áhuginn fyrir fegurðarsamkeppnum og fegurðardrottningum einna mestur í þessum hluta heimsins. Niðurstaðan varð, beint af flugvellinum í heimsókn á barnaspítala þar sem öll börnin og öll pressan beið spennt eftir okkur.

Og bíðiði bara..  Á leiðinni þangað sprakk á bílnum..!!

Leið eins og ég væri komin inn í einhverja lélega bíómynd, svona mikið af hrakningum á svo stuttum tíma er ekki hægt að skrifa undir sem tilviljanir!

Alveg magnað.. En á endanum komumst við þó á þennan blessaða spítala, kláruðum eitthvað af viðtölum og myndatökum og ég tek það fram, í mínus ferskleikastigum og þegar klukkan var orðin 12 á miðnætti vorum við loksins settar aftur út í bíl og héldum auðvitað að við værum að fara upp á hótel, tékka okkur inn.. OG SOFA!

En neibb.. Dinner var það og stóð hann í næstum þrjá tíma og þar hélt ég virkilega að ég yrði ekki eldri..! Komin upp í rúm kl. 6 á líkamsklukkunni minni en þá fengum við nokkurra tíma svefn áður en ævintýrið hélt áfram..

-Framhald á morgun-Glottandi

-UB

 


..30 klst. ferðalag framundan..!

Veit ekki alveg með þessa skipulagningu á ferðinni minni til Brasilíu á morgun. Virkar voðalega flókiðÓákveðinn

Legg af stað heiman frá mér, 5 í fyrramálið. Flug til London upp úr 7 og komin þangað á hádegi. Á Heathrow þarf ég að bíða til 19 en þá flýg ég til Parísar sem tekur um klukkustund. Á MIÐNÆTTI flýg ég svo loksins af stað til Brasilíu, en einhverra hluta vegna tekur það flug heila 13 tíma..

Samanlagt: 30 tíma ferðalag framundan

Og "note bene" ég er að fara til þess hluta heimsins þar sem fegurðardrottningar eru í hávegum hafðar sem aldrei fyrr..! Það verður móttökuhátíð þegar ég lendi á flugvellinum sem þýðir kjóll og kóróna þegar ég stíg út úr vélinni eftir þetta svakalega ferðalag. Hversu ferskur verður maður?!? Þar get ég engu lofað!!Glottandi

Annars komst að því í dag að það verður engin Verslunarmannahelgi hjá mér í ár þar sem ég kem heim úr þessari ferð að kvöldi 6. ágúst.. Kannski maður plati bara flugmanninn til að henda mér út í yfir Vestmanneyjum þar sem við eigum hvort eð er leið þar um! Verður allavega tilfinningarík stund að fljúga þarna yfir í miðjum brekkusöngnum vitandi af fólki sem manni þykir vænt um þarna niðri í dalnum.. 

Skrifa næst frá BRAZILBrosandi

-UB

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband