Færsluflokkur: Kína

..Fullt tungl..

Æhh.. dæs..! Er búin að vera hálf ómöguleg í allan dag.. Stundum þarf lítið til.. Held að upptökin séu þó alveg borðleggjandi því að ein lítil moskítófluga kaus að halda partý í herberginu mínu í nótt og bókstaflega halda fyrir mér vöku til 5 í morgun..!! Aðal trendið í partýinu var víst að bíta mig og tókst henni það fjórum sinnum og óska ég henni innilega til hamingju með það, þar sem ég var búin að gera allt sem ég mögulega gat til að koma í veg fyrir bit! 

Ekki batnaði það því ég var svo vakin upp með látum í morgun en sú ákvörðun hafði skyndilega verið tekin að ég ætti að koma með í skólaheimsóknir sem ég upphaflega átti ekki að fara í. Ég fékk 20 min til að gera mig reddy fyrir "kórónu og borða viðburð" (= kjóll og krullur) og enginn tími fyrir morgunmat. Það má því með sanni segja að ég hafi farið vel öfugu megin fram úr rúminu í morgun sem gerði að verkum að ég var aðeins hálf manneskja í allan dag..

Til að kóróna daginn tók ég svo uppreisnar týpuna á þetta í kvöld. Sat með Ásdísi og stelpunum úr Norður Evrópu í dinner og stakk svo af í göngutúr eftir myrkur en ég bara varð að fá freskt loft fyrir svefninn.. Hefði reyndar ekki verið í góðum málum ef einhver hefði komið auga á mig en ég fór huldu höfði, með Harry undir hendinni og átti góða kvöldstund með sjálfri mér og fullu tungliBrosandi

Kominn tími á svefntilraunir fyrir mig..

Hugsa heim..

-Uns


..Pic..

Var að fá þessar mynd senda frá vinkonu minni henni Kasha sem ég kynntist hér í Póllandi í einni að fyrstu ferðunum hingað á árinu en ég er náttúrulega búin að koma hingað endalaust oft og hún alltaf verið með mér!Glottandi

Hérna erum við að pósa með e-m sem vildi mynd, á kvöldinu þar sem keppendurnir komu fram í fyrsta skipti. Kasha var Miss Polonia 2004 og Miss Northern Europe í Miss World sama ár en hún er pínulítið breytt í dag en þá var hún ljóshærð.. Kannski maður ætti að feta í fótspor hennar og lita hárið ljóst þegar þetta er allt saman búið! Nee, held ekki.. Yrði líklega eins og ég veit ekki hvað!Ullandi

 

-UB

-


.."Childrens Party"..

Dagurinn á enda og var bara nokkuð ljúfur..Brosandi

Venezuela stóð uppi sem sigurvegari Beach Beauty keppninnar en Indland og Tékkland voru í öðru og þriðja sæti. Fannst reyndar svolítið skrítið að úrslitin væru tilkynnt strax, því nú veit Venezuela það sem eftir er mánaðarins að hún er komin í topp 16 á lokakvöldinu. Í fyrra var það þannig að "fast track" sætin, eins og þau eru kölluð, voru tilkynnt á generalprufinni til að koma í veg fyrir að stelpurnar sem hlutu þau myndu ekki breyta hegðun sinni gagnvart hinum keppendunum..

En nú eru það allavega orð með réttu að samkeppnin er hafin og næsta keppni innan MW er, að ég held íþróttakeppnin sem verður með öðru sniði í ár en áður. Núna verður hún einstaklingsbundin og sigurvegarinn hlýtur svona "fast track" sæti en í fyrra var þetta bara keppni á milli heimsálfa og aðeins til gamans gert.

Er búin að vera dugleg í námsbókunum í dag enda nokkuð góðan frítíma fengiðGlottandi Prufaði einnig í fyrsta skipti að hlusta á íslenskt útvarp á netinu, hafði einhverja hluta vegna ekki pælt í því áður, en ég hafði ekki hugmynd um að það væri svona auðvelt. Hélt að maður þyrfti einhverja rosa góða nettengingu sem er ekki beint til staðar hérna en þetta var lítið mál og gaman að heyra fréttir og hlusta á tónlist að heiman til tilbreytingar..

Annars hefur íslenskur tónlistarmaður verið mikið spilaður í tölvunni minni síðasta sólarhringinn. Það er hann Pétur Ben, mikið ofboðslega er hann góður. Get ekki beðið eftir að heyra meira frá honum..

Núna seinnipartinn komu svo langveik börn í heimsókn hingað á hótelið og hlýddi ég á tónleika með þeim og hluta keppendanna. Þetta voru ofsalega mikið veik börn og mörg áttu í rauninni ekki langt eftir. Máttum ekki snerta sum þeirra, enda svo brothætt þegar þau eru svona lasin þessir litlu englar. Það tók virkilega á að eyða tíma með þeim en ofsalega gefandi og fannst mér ekkert smá erfitt að kveðja þau í lokin en þá var ég búin að gera allt fyrir þau sem ég mögulega gat. Myndatökur, eiginhandaráritanir og meira að segja sitja með sum þeirra í fanginu í þó nokkurn tíma. Enn þau sjálf virtust ekkert smá ánægð með þetta litla partý sem við skipulögðum fyrir þau og stelpurnar/keppendurnir voru æði í kringum börnin og vildu allt fyrir þau geraBrosandi

Þetta var ábyggilega í eitt af síðustu skiptunum sem ég geri eitthvað svona sem Miss World þannig að ég gaf af mér eins mikið og ég átti sem gerir það að verkum að ég er gjörsamlega búin á því kvöld.. Held að smá hugleiðsla og kertaljós sé málið..

Góða ferð í nóttina..

-Uns


..Bawh..

Ég vaknaði klukkutíma of snemma í morgun án þess að átta mig á því, dreif mig á fætur, beint í kjólinn, tilbúin með eyrnalokkana í stíl og búin að mála mig og allar græjur þegar ég ég átta mig á því að ég er aðeins OF snemma á ferðinniGlottandi  Vaknaði s.s 6.15 í stað 7.15 og leit margoft á klukkuna án þessa að kveikja á því að það væri eitthvað "ekki alveg rétt" við tímann Brosandi

Frekar fyndið þegar þetta kemur fyrir mann.. Maður hefur heyrt margar sögur í gegnum tíðina af fólki sem mætti í skólann 7 í stað 8 eða jafnvel á laugardegi..

En ég hinkra þá bara eftir morgunmat.. Ekki málið.. Er samt strax byrjuð að geispa þar sem ég veit nú að ég hefði getað sofið lengur.. En ég hefði líka getað farið fyrr að sofa þannig að það er allt önnur saga Glottandi

Að þurfa að vera í kokteilkjól, bingóhælum og með eyeliner í morgunmat er eitt af undrum þessa starfs sem rennur senn á enda hjá mér.. Dálítið skondið, en venst ágætlega og þá sérstaklega þegar skvísurnar í kringum mann fara að mæta í síðkjólum með slóða í hádegismat. Það gerist þegar líða fer á og þær átta sig á því að þær munu líklega ekki fá tækifæri til að nota alla þessa trufluðu kjóla sem þær tóku með sér. Er strax búin að sjá tvo sem ég væri sko meira en til í að eiga en að vera hérna og fylgjst með hópnum utanfrá er stundum eins og að vera á "live" tískusýningu á hverjum degi. Ekkert smá mikið af flottum fötum..

Enn komin tími að fara niður! Morgunmaturinn bíðurGlottandi

-UB


..Þreyttur..

Lítið nýtt í fréttum.. Dagurinn fór í eitt og annað. Nokkur viðtöl og myndataka úti í sólinni þannig að ég var sátt..Brosandi

Það fréttnæmasta er að ákveðið hefur verið að velja 5 stúlkur í viðbót inn í bikíní keppnina sem verður svo eftir hádegi á morgun. Finndist nú alveg sanngjarnt að hún Ásdís mundi detta þarna inn, enda svaka kroppur og sef ég því með krosslagða fingur í nótt!

Annað á dagskránni hjá mér á morgun eru tónleikar hérna á hótelinu fyrir langveik börn sem eru væntanleg í heimsókn seinnipartinn og mun ég ásamt nokkrum af stelpunum hlýða á þá og mála svo myndir með börnunum. Gaman gaman..!Glottandi 

Talandi um myndir.. Ykkur er eflaust farið í þyrsta í svoleiðis, en því miður hefur verið lítið um slík tækifæri síðustu daga, enda rólegir og viðburðarlitlir miðað við venjulega..

Er orðin ansi dösuð núna enda komið yfir miðnætti og því að farin að hugsa mér til hreyfings yfir í rúmið góða. Er líka að díla við ansi illkvittnar aukaverkanir líkamsræktar, öðru nafni harðsperrur sem verða seint í uppáhaldi og aðeins eitt við þeim að gera. Fara aftur á brettið á morgun..!

Góða drauma..

-Uns


..Bikiní drottningar valdar..

Það er greinilegt að ýmsar breytingar verða á tilhögun keppninnar í ár frá því í fyrra. T.d voru valdar í gærkvöldi 20 stelpur sem að taka þátt í Beach Beauty keppninni síðar í vikunni, en í fyrra tókum við allar þátt. Stúlkurnar gengu um á sundfatnaði fyrir framan dómnefnd í allt gærkvöld og skiljanlega mjög stressaðar en úrslitin voru tilkynnt strax og eftirfarandi lönd komust áfram:

Angola
Barbados
Canada
Colombia
Czech Republic
India
Ireland
Italy
Nigeria
Panama
Philippines
Poland
Puerto Rico
Romania
Scotland
Singapore
Slovenia
Spain
Sweden
Venezuela

(www.missworld.com)

Þessi úrslit leggja pínulítið línurnar fyrir komandi keppni enda margar stelpurnar þarna stórglæsilegar og eiga eftir að komast langt!Glottandi

Annars er bongó blíða hér í Póllandi í dag.. Loksins..!! Búið að vera frekar grátt yfir, síðan við komum og var ég orðin viss um að sumarið hér væri á enda..

Stelpunum var skipt upp í nokkra hópa í dag, allar í myndatökum en á sitthvorum staðnum. Sumar fóru snemma í morgun með rútum til kastalans í Malbork sem ég heimsótti í vor en aðrar eru niðrá strönd eða í gamla bænum í Gdynia eða Gdansk. Sem þýðir að ég er ein upp á hóteli og á daginn þannig séð frían.. Það er nefnilega svoleiðis að þrátt fyrir að ég vildi það, þá mætti ég ekki fara með stelpunum nema þær væru allar að fara á sama staðinn, því annars dregst víst meiri athygli að einum hópnum frekar en öðrum og það eru blaðamenn ALLS staðar..!

Ætla nú samt í göngutúr niðrá strönd í dag, hvað sem tautar og raular. Þvílíkt gott veður og ég bara neita að vera inni í allan dag, eins og í gær.. Maður fær bara hausverk af þessu súrefnisleysi!Brosandi

Skrifa meira seinna í dag! Ætla að tölta í ræktina..

-UB.


..Heilbrigður lífstíll..

Ahh.. Mér líður vel í dag.. Þetta er svo heilbrigður lífstíll sem maður lifir hérna.. Vaknað snemma, beint í góðan og hollan morgunmat, mikið af ávöxtum og grænmeti. Svo farið í ræktina, lært aðeins, farið í "lunch" þar sem það er sama sagan, mikið grænt og kraftmikil súpa í matinn. Ekkert gos hefur farið inn fyrir mínar varir í þessari ferð og lítið sem ekkert sælgæti nema það sem ég tók með mér að heiman. En ég er nefnilega forfallinn nammigrís og það er sko heilagur sannleikur. Veit að þetta er eitthvað svona týpískt sem "fegurðardrottningar" mundu segja en því miður er það satt í mínu tilfelli og held ég að allir mínir nánustu geti staðfest þaðGlottandi

Dagskráin mín er ansi ljúf í dag.. Það er bara ekki nokkur skapaður hlutur sem ég þarf að gera! Þannig að ég er komin í inniskóna og leggingsbuxurnar og sest við lærdóm. Eins gott að nota tímann vel...

Þyrfti reyndar eiginlega að láta læsa O.C seríuna mína einhverstaðar inni. Hún er allt OF freistandi. Horfði á einn þátt í gær og búin að vera með titillagið á heilanum síðan. Eða öllu heldur lagið og textann sem góðvinir mínir úr MS, Kári og Smári sömdu á sínum tíma. Mikið ofsalega kallar það fram góðar minningar enda var það sungið við hvert tækifæri.. 

Annars fann ég það þegar ég fór í ræktina í morgun að ég er komin með þvílík fráhvarfseinkenni frá dansinum.. Hef ekki tekið danstíma síðan ég veit ekki hvenær og get hreinlega ekki beðið eftir að koma heim og fara að mæta aftur og fá útrás í því. Manni líður mun, mun betur þegar maður er að hreyfa sig og þar sem tækjasalir og hlaupabretti eru ekki í uppáhaldi, nota ég dansinn.

Eins og áður sagði fer dagurinn í lærdóm og svo á ég pantaðan tíma í nudd hér á hótelinu í kvöld.. Þvílíkt dekur í gangi, en það má líka stundum..Glottandi Stelpurnar búnar að vera í tökum í dag og byrja svo að æfa rútínu fyrir Beach Beauty keppnina í kvöld, þannig að ég hef ræktina og nuddstofuna alveg útaf fyrir mig. Svo held ég að það sé bara sauna eftir nuddið og grænt te og hugleiðsla seinna í kvöld fyrir svefninn svo það taki mig ekki 2 tíma að sofna eins og í gær.. Var að drukkna í hugsunum en það fer frekar mikið í taugarnar á mér þegar hausinn á mér gerir þetta..

Sakna þessara tveggja dálítið hérna úti en þau ásamt Bjarti mínum verða sjónvarpsstjörnur heima á Íslandi um miðjan mánuðinn, enda einstökBrosandi

Farið vel með ykkur..

-UB

 


..Yellow..

Þetta var nú góður og nauðsynlegur svefn sem ég náði.. Er í kósý herbergi hérna með góðu rúmi og sæng sem er ekki sjálfgefið á hótelum, og er ég mjög þakklát fyrir það ! Glottandi

Erum með þetta hótel hér í bænum Gdynia alveg útaf fyrir okkur þannig að frelsið er mun meira.. Má fara á milli herbergja og hæða án þessa að hafa shapperona með mér og ég hef meira að segja fengið leyfi til að fara í ræktina sjálf sem er met! Einmitt að hugsa um að gera það á eftir, búin að sofa í allan dag og sofna aldrei í nótt ef ég geri mig ekki þreytta (sem ég verð ef ég hreyfi mig, alveg búin að fara tvisvar í Laugar á árinu og ekki stolt af því!Óákveðinn ) en ég lenti nefnilega í því að  vera andvaka síðustu nótt sem var ekki mjög hressandi..

Stundum vildi ég óska þess að ég væri keppandi aftur í ár eins og hinar stelpurnar. Þetta var svo lúmskt gaman og stemmningin hérna minnir mig mikið á þessa upplifun mína Kína. Ég finn einnig fyrir því hvað ég sakna stelpnanna úr hópnum mínum síðan í fyrra og var einmitt að senda þeim línu í dag, en reunion er alltaf í umræðunni, spurning hvort það verður af því eður ei..

Ég er líka svoldið mikið ein á báti hérna. Alltaf með einhverjum starfsmanni jú, en haldið í vissri fjarlægð frá stelpunum. Sit ekki með þeim í matsalnum né rútunum á milli staða og heldur ekki í flugvélinni í morgun. En svo er líka stundum erfitt að vera of mikið í kringum þær því þær koma öðruvísi fram við mig en hvor aðra. Skiljanlega kannski.. Gerði það sjálf í fyrra í þau fáu skipti sem ég talaði við Maju, Miss World 2004, en hún var einmitt svona fjarlæg okkur og við vorkenndum henni pínulítið því hún virtist aðeins einmanna sem ég giska á að ég sé líka núna..

Annars er ég búin að komast að því að ég ég ELSKA tungumál. Gæti setið klukkutímum saman og hlustað á fólk tala tungumál sem ég kannast við eins og spænsku og þýsku. Því ótrulegt en satt, ef fólk talar nógu rólega og horfi nógu gaumgæfilega á líkamstjáningu þeirra þá skil ég nákvæmlega hvað það er að segja, enn gæti ekki fyrir mitt litla líf, sjálf haldið uppi vitsmunalegum samræðum eins og staðan er í dag!Glottandi

Hugleiðsluæfingarnar mínar ganga hægt og bítandi.. Reyndi við tvær í gær en einbeitingin var út og suður og ég þurfti að byrja nokkrum sinnum upp á nýtt til að að ná þessu.. Ætla samt ekki að gefast upp! Hef fulla trú á að þetta geti gert mér gott og sé eitthvað sem ég þurfi að tileinka mér í lífinu..

Annars að pæla í svindla aðeins núna.. Er nefnilega með þriðju seríu O.C með mér, sem ég hef ekki  ennþá séð og er að hugsa um að stelast í einn á þátt þó ég sé ekkert búin að læra í dag en ég ætlaði að nota þættina, "einn á dag" til að verðlauna sjálfa mig ef ég yrði dugleg að læra.. Svona er sjálfsaginn mikill!Brosandi

Annars er tónlistin alltaf jafn stór þáttur í tilveru minni eins og þið hafið tekið eftir.. Búin að hlusta mikið og eiginlega aðeins á íslenska tónlist síðustu mánuði sem ég höndla ekki lengur.. Veit ekki afhverju ég er að hlusta á þetta gamla góða lag núna, en lag dagsins  í dag hefur verið..

Yellow með Coldplay í acoustic útgáfu..

..Look at the stars, look how they shine for you, everything you do..

-Uns


..Myndir..

Hérna eru nokkrar myndir af henni Ásdísi síðan í gærkvöldi.. Er ekki með neinar af mér, enda er nú líka kannski bara komið gott af þeim í bili..Glottandi

Samkeppnin.. Hópurinn hennar Norður-Evrópa.

Þetta var sætasta atriði sem ég hef séð lengi.. Allt niðrí þriggja ára krakkar að syngja og dansa, algjörar rúsínur!!Glottandi

 

En núna er ég farin að leggja mig.. Náði varla að sofa dúr í nótt, búin að vera að ferðast í allan morgun með flugi og rútu og  hvað ég er þreytt!

Þangað til næst..

 -UB

 


..Erfiður dagur..

Ji, ég trúi ekki að ég sé að þessu! Búinn að vera endalaust langur dagur, þarf að vakna eftir 4 tíma og ég sit við tölvuna, en ekki komin í rúmið!!

En mig langar ekkert voðalega að eta ofan í mig þessar yfirlýsingar mínar fyrst ég var að þeim yfir höfuð og því er staðan svona!Glottandi

Þetta var frekar mikið langur og erfiður dagur.. Fengum reyndar að sofa til 10 sem ég kvarta ekki yfir en eftir það byrjaði hringavitleysan.. Stelpurnar/ Keppendurnir áttu að vera á æfingum í allan dag fyrir stóra sýningu sem var "live" í sjónvarpinu í kvöld og ég var látin fara með þeim þar sem gert var ráð fyrir að ég væri hluti af sýningunni. Ekki fyrr en allt of seint, þegar ég var búin að vera niðurfrá í 2 tíma komumst við að því að ég var í raun ekki partur af sýningunni heldur bara heiðursgestur í sal og þurfti því rauninni ekkert að vera þarna. 

Til að gera langa sögu stutta var ég að koma upp á hótel núna og kl. er 12 á miðnætti en hún var 14:00 þegar ég kom niðrí þetta leikhús í dag.. Þið sem þekkið mig getið rétt ímyndað ykkur svipinn á mér eftir svona dag. Hefði svoo getað lært í marga marga tíma..!

Enn hvað um það.. Þetta er vinna líka og vinna sem ég er víst enn að sinna.

Þessi sýning var nokkurskonar kynning á keppendunum með stórkostlegum skemmtiatriðum inn á milli. Margar þvílíkt flottar stelpur, en ég þori ekki að fara að nefna þær hér ef heimspressan skildi komast í það að ég sé að velja mér uppáhalds.. En ég get sagt það, að eins og er, er ég komin með mínar topp 6 í bili (eina úr hverri heimsálfu) en það gæti allt breyst þegar líður á og ég fer að kynnast þeim betur..Glottandi

En sorry! Verð virkilega að fara henda mér í rúmið.. Set inn nokkrar myndir á morgun.. OG já! By the way.. Þá er ástæðan fyrir því að við erum að fara að vakna 4, sú að við erum að fara í flug norður á bóginn þar sem við verðum út vikuna..

Sofið nú vel..

-Uns

Ps. Ef það eru 17 innsláttarvillur í þessu stutta bloggi mínu þá verðiði bara að afsaka það. Get ekki meir í bili..Brosandi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband