6.9.2006 | 07:44
..Bikiní drottningar valdar..
Það er greinilegt að ýmsar breytingar verða á tilhögun keppninnar í ár frá því í fyrra. T.d voru valdar í gærkvöldi 20 stelpur sem fá að taka þátt í Beach Beauty keppninni síðar í vikunni, en í fyrra tókum við allar þátt. Stúlkurnar gengu um á sundfatnaði fyrir framan dómnefnd í allt gærkvöld og skiljanlega mjög stressaðar en úrslitin voru tilkynnt strax og eftirfarandi lönd komust áfram:
Angola
Barbados
Canada
Colombia
Czech Republic
India
Ireland
Italy
Nigeria
Panama
Philippines
Poland
Puerto Rico
Romania
Scotland
Singapore
Slovenia
Spain
Sweden
Venezuela
Þessi úrslit leggja pínulítið línurnar fyrir komandi keppni enda margar stelpurnar þarna stórglæsilegar og eiga eftir að komast langt!
Annars er bongó blíða hér í Póllandi í dag.. Loksins..!! Búið að vera frekar grátt yfir, síðan við komum og var ég orðin viss um að sumarið hér væri á enda..
Stelpunum var skipt upp í nokkra hópa í dag, allar í myndatökum en á sitthvorum staðnum. Sumar fóru snemma í morgun með rútum til kastalans í Malbork sem ég heimsótti í vor en aðrar eru niðrá strönd eða í gamla bænum í Gdynia eða Gdansk. Sem þýðir að ég er ein upp á hóteli og á daginn þannig séð frían.. Það er nefnilega svoleiðis að þrátt fyrir að ég vildi það, þá mætti ég ekki fara með stelpunum nema þær væru allar að fara á sama staðinn, því annars dregst víst meiri athygli að einum hópnum frekar en öðrum og það eru blaðamenn ALLS staðar..!
Ætla nú samt í göngutúr niðrá strönd í dag, hvað sem tautar og raular. Þvílíkt gott veður og ég bara neita að vera inni í allan dag, eins og í gær.. Maður fær bara hausverk af þessu súrefnisleysi!
Skrifa meira seinna í dag! Ætla að tölta í ræktina..
-UB.
5.9.2006 | 15:39
..Heilbrigður lífstíll..
Ahh.. Mér líður vel í dag.. Þetta er svo heilbrigður lífstíll sem maður lifir hérna.. Vaknað snemma, beint í góðan og hollan morgunmat, mikið af ávöxtum og grænmeti. Svo farið í ræktina, lært aðeins, farið í "lunch" þar sem það er sama sagan, mikið grænt og kraftmikil súpa í matinn. Ekkert gos hefur farið inn fyrir mínar varir í þessari ferð og lítið sem ekkert sælgæti nema það sem ég tók með mér að heiman. En ég er nefnilega forfallinn nammigrís og það er sko heilagur sannleikur. Veit að þetta er eitthvað svona týpískt sem "fegurðardrottningar" mundu segja en því miður er það satt í mínu tilfelli og held ég að allir mínir nánustu geti staðfest það
Dagskráin mín er ansi ljúf í dag.. Það er bara ekki nokkur skapaður hlutur sem ég þarf að gera! Þannig að ég er komin í inniskóna og leggingsbuxurnar og sest við lærdóm. Eins gott að nota tímann vel...
Þyrfti reyndar eiginlega að láta læsa O.C seríuna mína einhverstaðar inni. Hún er allt OF freistandi. Horfði á einn þátt í gær og búin að vera með titillagið á heilanum síðan. Eða öllu heldur lagið og textann sem góðvinir mínir úr MS, Kári og Smári sömdu á sínum tíma. Mikið ofsalega kallar það fram góðar minningar enda var það sungið við hvert tækifæri..
Annars fann ég það þegar ég fór í ræktina í morgun að ég er komin með þvílík fráhvarfseinkenni frá dansinum.. Hef ekki tekið danstíma síðan ég veit ekki hvenær og get hreinlega ekki beðið eftir að koma heim og fara að mæta aftur og fá útrás í því. Manni líður mun, mun betur þegar maður er að hreyfa sig og þar sem tækjasalir og hlaupabretti eru ekki í uppáhaldi, nota ég dansinn.
Eins og áður sagði fer dagurinn í lærdóm og svo á ég pantaðan tíma í nudd hér á hótelinu í kvöld.. Þvílíkt dekur í gangi, en það má líka stundum.. Stelpurnar búnar að vera í tökum í dag og byrja svo að æfa rútínu fyrir Beach Beauty keppnina í kvöld, þannig að ég hef ræktina og nuddstofuna alveg útaf fyrir mig. Svo held ég að það sé bara sauna eftir nuddið og grænt te og hugleiðsla seinna í kvöld fyrir svefninn svo það taki mig ekki 2 tíma að sofna eins og í gær.. Var að drukkna í hugsunum en það fer frekar mikið í taugarnar á mér þegar hausinn á mér gerir þetta..
Sakna þessara tveggja dálítið hérna úti en þau ásamt Bjarti mínum verða sjónvarpsstjörnur heima á Íslandi um miðjan mánuðinn, enda einstök
Farið vel með ykkur..
-UB
4.9.2006 | 19:43
..Yellow..
Þetta var nú góður og nauðsynlegur svefn sem ég náði.. Er í kósý herbergi hérna með góðu rúmi og sæng sem er ekki sjálfgefið á hótelum, og er ég mjög þakklát fyrir það !
Erum með þetta hótel hér í bænum Gdynia alveg útaf fyrir okkur þannig að frelsið er mun meira.. Má fara á milli herbergja og hæða án þessa að hafa shapperona með mér og ég hef meira að segja fengið leyfi til að fara í ræktina sjálf sem er met! Einmitt að hugsa um að gera það á eftir, búin að sofa í allan dag og sofna aldrei í nótt ef ég geri mig ekki þreytta (sem ég verð ef ég hreyfi mig, alveg búin að fara tvisvar í Laugar á árinu og ekki stolt af því! ) en ég lenti nefnilega í því að vera andvaka síðustu nótt sem var ekki mjög hressandi..
Stundum vildi ég óska þess að ég væri keppandi aftur í ár eins og hinar stelpurnar. Þetta var svo lúmskt gaman og stemmningin hérna minnir mig mikið á þessa upplifun mína Kína. Ég finn einnig fyrir því hvað ég sakna stelpnanna úr hópnum mínum síðan í fyrra og var einmitt að senda þeim línu í dag, en reunion er alltaf í umræðunni, spurning hvort það verður af því eður ei..
Ég er líka svoldið mikið ein á báti hérna. Alltaf með einhverjum starfsmanni jú, en haldið í vissri fjarlægð frá stelpunum. Sit ekki með þeim í matsalnum né rútunum á milli staða og heldur ekki í flugvélinni í morgun. En svo er líka stundum erfitt að vera of mikið í kringum þær því þær koma öðruvísi fram við mig en hvor aðra. Skiljanlega kannski.. Gerði það sjálf í fyrra í þau fáu skipti sem ég talaði við Maju, Miss World 2004, en hún var einmitt svona fjarlæg okkur og við vorkenndum henni pínulítið því hún virtist aðeins einmanna sem ég giska á að ég sé líka núna..
Annars er ég búin að komast að því að ég ég ELSKA tungumál. Gæti setið klukkutímum saman og hlustað á fólk tala tungumál sem ég kannast við eins og spænsku og þýsku. Því ótrulegt en satt, ef fólk talar nógu rólega og horfi nógu gaumgæfilega á líkamstjáningu þeirra þá skil ég nákvæmlega hvað það er að segja, enn gæti ekki fyrir mitt litla líf, sjálf haldið uppi vitsmunalegum samræðum eins og staðan er í dag!
Hugleiðsluæfingarnar mínar ganga hægt og bítandi.. Reyndi við tvær í gær en einbeitingin var út og suður og ég þurfti að byrja nokkrum sinnum upp á nýtt til að að ná þessu.. Ætla samt ekki að gefast upp! Hef fulla trú á að þetta geti gert mér gott og sé eitthvað sem ég þurfi að tileinka mér í lífinu..
Annars að pæla í svindla aðeins núna.. Er nefnilega með þriðju seríu O.C með mér, sem ég hef ekki ennþá séð og er að hugsa um að stelast í einn á þátt þó ég sé ekkert búin að læra í dag en ég ætlaði að nota þættina, "einn á dag" til að verðlauna sjálfa mig ef ég yrði dugleg að læra.. Svona er sjálfsaginn mikill!
Annars er tónlistin alltaf jafn stór þáttur í tilveru minni eins og þið hafið tekið eftir.. Búin að hlusta mikið og eiginlega aðeins á íslenska tónlist síðustu mánuði sem ég höndla ekki lengur.. Veit ekki afhverju ég er að hlusta á þetta gamla góða lag núna, en lag dagsins í dag hefur verið..
Yellow með Coldplay í acoustic útgáfu..
..Look at the stars, look how they shine for you, everything you do..
-Uns
4.9.2006 | 11:27
..Myndir..
Hérna eru nokkrar myndir af henni Ásdísi síðan í gærkvöldi.. Er ekki með neinar af mér, enda er nú líka kannski bara komið gott af þeim í bili..
Samkeppnin.. Hópurinn hennar Norður-Evrópa.
Þetta var sætasta atriði sem ég hef séð lengi.. Allt niðrí þriggja ára krakkar að syngja og dansa, algjörar rúsínur!!
En núna er ég farin að leggja mig.. Náði varla að sofa dúr í nótt, búin að vera að ferðast í allan morgun með flugi og rútu og vá hvað ég er þreytt!
Þangað til næst..
-UB
3.9.2006 | 22:37
..Erfiður dagur..
Ji, ég trúi ekki að ég sé að þessu! Búinn að vera endalaust langur dagur, þarf að vakna eftir 4 tíma og ég sit við tölvuna, en ekki komin í rúmið!!
En mig langar ekkert voðalega að eta ofan í mig þessar yfirlýsingar mínar fyrst ég var að þeim yfir höfuð og því er staðan svona!
Þetta var frekar mikið langur og erfiður dagur.. Fengum reyndar að sofa til 10 sem ég kvarta ekki yfir en eftir það byrjaði hringavitleysan.. Stelpurnar/ Keppendurnir áttu að vera á æfingum í allan dag fyrir stóra sýningu sem var "live" í sjónvarpinu í kvöld og ég var látin fara með þeim þar sem gert var ráð fyrir að ég væri hluti af sýningunni. Ekki fyrr en allt of seint, þegar ég var búin að vera niðurfrá í 2 tíma komumst við að því að ég var í raun ekki partur af sýningunni heldur bara heiðursgestur í sal og þurfti því rauninni ekkert að vera þarna.
Til að gera langa sögu stutta var ég að koma upp á hótel núna og kl. er 12 á miðnætti en hún var 14:00 þegar ég kom niðrí þetta leikhús í dag.. Þið sem þekkið mig getið rétt ímyndað ykkur svipinn á mér eftir svona dag. Hefði svoo getað lært í marga marga tíma..!
Enn hvað um það.. Þetta er vinna líka og vinna sem ég er víst enn að sinna.
Þessi sýning var nokkurskonar kynning á keppendunum með stórkostlegum skemmtiatriðum inn á milli. Margar þvílíkt flottar stelpur, en ég þori ekki að fara að nefna þær hér ef heimspressan skildi komast í það að ég sé að velja mér uppáhalds.. En ég get sagt það, að eins og er, er ég komin með mínar topp 6 í bili (eina úr hverri heimsálfu) en það gæti allt breyst þegar líður á og ég fer að kynnast þeim betur..
En sorry! Verð virkilega að fara henda mér í rúmið.. Set inn nokkrar myndir á morgun.. OG já! By the way.. Þá er ástæðan fyrir því að við erum að fara að vakna 4, sú að við erum að fara í flug norður á bóginn þar sem við verðum út vikuna..
Sofið nú vel..
-Uns
Ps. Ef það eru 17 innsláttarvillur í þessu stutta bloggi mínu þá verðiði bara að afsaka það. Get ekki meir í bili..